fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
Fréttir

Ógnandi lögreglumaður sagður hafa bannað myndatöku

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 8. febrúar 2024 11:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, segir að fjölmiðilinn hafi haft samband við lögregluna á Suðurnesjum í morgun til að tilkynna um framgöngu lögreglumanna á Reykjanesbraut í morgun.

Fjallað er um málið á vef Mannlífs þar sem Reynir sjálfur skrifar um málið.

„Lögreglubifreið með sírenum og ljósum stöðvaði fyrir aftan bifreið blaðamanns Mannlífs á Reykjanesbraut í morgun. Bifreiðin var kyrrstæð á vegöxlinni í þeim tilgangi að taka nokkrar myndir af eldgosinu við Stóra-Skógfell. Eftir örstutt stopp birtist lögreglubifreið og stöðvaði aftan við bifreiðina,“ segir í greininni.

Hann segir að ökumaður hafi farið út úr bifreiðinni til að ræða við lögreglu en hún ekki viljað neitt samtal, heldur svarað á háu nótunum og fyrirskipað ökumanni að aka þegar af stað.

„Engin umferð var í næsta nágrenni og hættan engin þar sem bifreiðin var á vegöxlinni. Þrátt fyrir þá útskýringu að um væri að ræða fjölmiðil, að störfum og beiðni um að fá að taka myndir, hélt lögreglumaðurinn áfram að ítreka með háværum hætti að bifreiðinni skyldi tafarlaust ekið áfram. Hann tók í engu mark á ósk um að sýna kurteisi en endurtók aðeins í síbylju: „Áfram, áfram.“

Reynir segir að lögreglubíllinn hafi svo elt blaðamann með ljósin á í átt að Grindavíkurafleggjaranum þar sem eftirförinni lauk.

Fjallað er nánar um málið á vef Mannlífs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Maðurinn er fundinn
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“
Fréttir
Í gær

Sauð upp úr í anddyri hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ

Sauð upp úr í anddyri hárgreiðslustofu í Mosfellsbæ
Fréttir
Í gær

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“

Á bráðamóttöku eftir meint ofbeldi dyravarða á Auto – „Hann bara ældi og gat varla labbað eða talað“