Bloomberg skýrir frá þessu og vitnar í tvo heimildarmenn sem standa ráðamönnum í Kreml nærri. Miðillinn hefur eftir bandarískum embættismönnum að þeir hafi ekki heyrt af slíkum þreifingum og sjái þess engin merki að Pútín sé í alvöru að leita að útleið úr stríðinu sem er nú í pattstöðu.
Orðrómur um vilja Rússa til friðarviðræðna, jafnvel rangur, gæti ýtt undir klofning meðal bandamanna Úkraínumanna, einangrað stjórnvöld í Kyiv og grafið undan tilraunum Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseta, til að afla stuðnings við friðaráætlun sína en í henni felst meðal annars að Rússar kalli allt herlið sitt heim frá Úkraínu.
Rússnesku heimildarmennirnir sögðu að skilaboðum um vilja Pútíns hafi verið komið á framfæri við háttsetta bandaríska embættismenn í síðasta mánuði. Sögðu þeir að Pútín sé reiðubúinn til að íhuga að falla frá kröfu sinni um að Úkraína verði hlutlaust ríki og jafnvel falla frá kröfu sinni um að Úkraína megi ekki verða aðili að NATO. Fyrirhuguð aðild Úkraínu að NATO hefur einmitt verið aðalröksemdafærsla Pútíns fyrir innrásinni.
Dimitry Peskov, talsmaður Pútíns, sagði á föstudaginn að þessar fréttir séu ekki réttar og að Pútín hafi ítrekað sagt Rússar séu reiðubúnir til viðræðna um Úkraínu. Hann sagði einnig að Rússar séu staðráðnir í að ná markmiði sínu, helst eftir diplómatískum leiðum en ef það er ekki hægt, með hernaði.