Íbúar við Laufskóga og Klettahlíð í Hveragerði hafa skorað á bæjarstjórn að láta stöðva útblástur úr borholu við Klettahlíð. Mengun sé óásættanleg.
Ellefu íbúar hafa undirritað skjal sem sent var til bæjarstjórnar. Í skjalinu segir að skorað sé á bæjarstjórn Hveragerðisbæjar að sjá til þess að Veitur hætti alfarið útblæstri borholu sinnar við Klettahlíð.
„Bæjarfulltrúar allra flokka hafa lýst því yfir að starfsemi orkuvers í Ölfusdal með tilheyrandi útblæstri, mengun og hávaða sé óásættanleg í jaðri bæjarins. Því skjóti skökku við að borholublástur sé á sama tíma látinn viðgangast í íbúðarhverfum,“ segir í bréfi íbúanna.
Titringur og glamur í lögnum
Kemur þar einnig fram að borholan hafi reglulega angrað íbúa allt frá jarðskjálftaárinu 2008. Íbúar hafi ítrekað komið skriflegum og munnlegum kvörtunum á framfæri en Veitur hafi látið sem málið komi þeim ekki við.
„Þegar holan blæs fylgir henni alltaf hávaði sem nær inn um allt hús og stundum titringur svo glamrar í lögnum,“ segir í bréfinu. „Það fer svo eftir vindátt hver verður verst úti varðandi gufuna og það sem henni fylgir.“
Bent er á að algengustu vindáttirnar séu sunnan og norðanáttir. Það þýðir að gufan umlykur til skiptis hús við þessar tvær götur, Laufskóga og Klettahlíð.
Flæddi inn á lóðir
Borholan hefur ekki aðeins valdið íbúum mengun og hávaða. Árið 2011 greindi staðarmiðillinn
Sunnlenskafrá því að vatn hafi spýst yfir hús og flætt inn á lóðir í þessum tveimur götum.
Myndaðist þá 10 sentimetra djúp tjörn á einni lóðinni. Skemmdir hafi orðið á gróðri sem sé tryggingamál.
„Borholan er í halla fyrir ofan Klettahlíðina og rann vatnið þaðan í hálfgerðum læk. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunni var unnið að því að hreinsa og víkka út borholuna en háfur sem á að taka við vatninu hafði ekki undan og rann vatn fram hjá drenlögn með fyrrgreindum afleiðingum,“ segir í frétt Sunnlenska.
Vita af óþægindunum
Samkvæmt tilkynningum frá Veitum í gegnum árin er borholan við Klettahlíð aðeins notuð þegar álag er á hitaveitukerfinu eða vegna ákveðinna veðurskilyrða.
„Notkun þeirrar holu fylgir ónæði og óþægindi fyrir íbúa í nærliggjandi húsum. Ákvörðun um þetta fyrirkomulag er tekin í góðri samvinnu við bæjaryfirvöld í Hveragerði. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ sagði í tilkynningu frá því í október árið 2018 þegar grípa þurfti til þess að nota holuna um stundarsakir.
Með nýrri borholu í Ölfusdal árið 2019 átti að koma hitaveitu Hvergerðinga í viðunandi horf. Það hefur greinilega ekki tekist.
Bæjarráð Hveragerðisbæjar áframsendi bréf íbúanna til Veitna og óskaði svara við athugasemdum.