Flugfélagið PLAY hefur sent frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem félagið kynnir nýtt útlit og svokallaða „dýrari týpuna“
Í tilkynningu segir að „dýrari týpan“ sé formerkið sem verði notað til að selja lúxusflugferðir til að mæta eftirspurn viðskiptavina.
„Flugfélagið PLAY hefur hafið sölu á lúxusflugferðum undir formerkjunum „dýrari týpan“. Ein af tíu flugvélum félagsins verður notuð í ferðirnar en hún verður blá og hvít á litinn. Aðrar vélar PLAY verða áfram í rauða einkennislit félagsins. Vélin kemur til landsins á haustmánuðum og er af gerðinni A320neo. Fyrsta lúxusflugferð PLAY verður farin til Tenerife þann 20.sept.“
Í tilkynningu segir að með þessu sé félagið að auka vöruframboð og fá þeir sem kaupa flug með „dýrari týpunni“ ýmis fríðindi á borð við frítt vatn og úrval af eldra afþreyingarefni. Ekki standi til að félagið færi sig úr lággjaldamódelinu heldur er verið að mæta eftirspurn þeirra viðskiptavina sem eru tilbúnir að borga meira fyrir lúxus.
Haft er eftir Birgi Jónssyni forstjóra að blái liturinn hafi orðið fyrir valinu því hann endurspegli himin og hafi og hafi lengi verið tákn kóngafólks og heldir borgara. Rannsóknir sýni ennfremur að fólk borgi meira fyrir blátt.
Tilkynningin í heild sinni:
„„Flugfélagið PLAY hefur hafið sölu á lúxusflugferðum undir formerkjunum „dýrari týpan“. Ein af tíu flugvélum félagsins verður notuð í ferðirnar en hún verður blá og hvít á litinn. Aðrar vélar PLAY verða áfram í rauða einkennislit félagsins. Vélin kemur til landsins á haustmánuðum og er af gerðinni A320neo. Fyrsta lúxusflugferð PLAY verður farin til Tenerife þann 20.sept.
Með þessu er PLAY að auka vöruframboð sitt en þeir sem kaupa flug með dýrari týpunni fá ýmis fríðindi í fluginu, s.s. frítt vatn um borð og úrval eldra afþreyingarefnis í sætisbaki.
Með nýju útliti og auknu vöruúrvali er PLAY ekki að færa sig úr
lággjaldamódelinu heldur að mæta eftirspurn breiðs hóps viðskiptavina sem vill auknar vellystingar og borga aðeins meira fyrir þær. Verðinu verður haldið í lágmarki en farþegar geta búist við að borga um 30% hærra verð fyrir bláu ferðina.„Ég er hrikalega spenntur fyrir þessari nýju vöru og er sannfærður um að það sé eftirspurn til staðar. Blái liturinn varð fyrir valinu af því hann endurspeglar himin og haf og hefur lengi verið tákn kóngafólks og heldri borgara. Þá sýna rannsóknir að fólk borgar meira fyrir blátt. ,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri PLAY.“