fbpx
Sunnudagur 28.maí 2023
Fréttir

Blaðamannafélag Íslands fordæmir ákvörðun lögreglu og segir rannsókn hennar tilefnislausa

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 20. mars 2023 15:14

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands. Mynd: Ernir Eyjólfsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Blaðamannafélags Íslands fordæmir að Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður á Heimildinni, hljóti stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið. Kemur þetta fram í ályktun sem stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum:

„Stjórn Blaðamannafélagsins fordæmir að enn einn blaðamaðurinn, í þetta sinn Ingi Freyr Vilhjálmsson, hljóti stöðu sakbornings í tengslum við Samherjamálið, fyrir það eitt að sinna störfum sínum. Samkvæmt upplýsingum sem Ingi Freyr fékk hjá lögreglu við skýrslutöku fyrir fáeinum dögum er sakarefnið það eitt að hann var viðtakandi tölvupósts,“ segir í á­lyktuninni.

Segist stjórn félagsins lýsa yfir miklum áhyggjum af þeirri vegferð sem lögreglan virðist vera á – að það sé nú talið mögulega saknæmt athæfi að taka á móti tölvupóstum eða hvers kyns upplýsingum. Það sé einmitt kjarninn í vinnu hvers blaðamanns: Að taka á móti upplýsingum, meta trúverðugleika þeirra og fréttgildi í þágu almennings.

„Stjórnin bendir á fáránleika þeirra ákvörðunar Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að veita blaðamönnum stöðu sakborninga í þessu máli, enda liggur ekki fyrir að þeir hafi gerst sekir um saknæmt athæfi. Ennfremur vill Blaðamannafélagið undirstrika að störf og tjáningarfrelsi blaðamanna njóta ríkrar verndar vegna þess sérstaka hlutverks sem fjölmiðlar gegna með tilliti til opinberrar umræðu í lýðræðisríki. Því ber að gjalda varhug við íhlutan lögreglu sem kann að vera túlkuð sem afskipti af störfum blaðamanna við öflun og miðlun frétta um mikilvæg málefni.“

Ingi Freyr hefur, samkvæmt upplýsingum hans frá lögreglu, haft réttarstöðu sakbornings í um hálft annað ár, án þess að vera upplýstur um það. Hann segir lögreglu hafa skýrt það með því að hún hafi ranglega haldið að hann væri búsettur erlendis. Stjórn Blaðamannafélagsins telur þetta lýsandi fyrir vinnubrögð lögreglunnar á Norðurlandi eystra í þessu máli. Þau hafa einkennst af vanþekkingu en ekki síður vanvirðingu gagnvart grundvallarstörfum blaðamanna og hlutverki þeirra, sem og þeirri auknu vernd sem þeir hljóta samkvæmt lögum starfa sinna vegna. Að mati félagsins er rannsóknin í heild tilefnislaus með öllu. Hún er þó til þess gerð að skapa óvissu um lagalegan rétt blaðamanna og ótta innan stéttarinnar um að hver sem er geti hvenær sem er verið kallaður til yfirheyrslu og hlotið réttarstöðu sakbornings fyrir það eitt að fá sendan tölvupóst.

Stjórnin segist telja það óeðlilegt hve rannsókn þessa máls hefur tekið langan tíma og ríkissaksóknari hafai sent lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra erindi þar sem óskað er eftir skýringum á töfunum.

„Það er íþyngjandi fyrir alla að hafa réttarstöðu sakbornings, en fyrir blaðamenn er það sömuleiðis mikið inngrip inn í tjáningarfrelsi þeirra og störf. Þeim mun mikilvægari almannahagsmuni þarf þar af leiðandi til að réttlæta slíkt inngrip. Stjórn Blaðamannafélagsins krefst þess að lögreglan ljúki rannsókn sinni án frekari tafa.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Næturlífið í Reykjavík í nótt breyttist í martröð – Fór heim með tveimur konum en ekki var allt sem sýndist

Næturlífið í Reykjavík í nótt breyttist í martröð – Fór heim með tveimur konum en ekki var allt sem sýndist
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þröstur segir skemmdarverk vofa yfir Sundhöll Reykjavíkur – „Sál hússins verður rifin á brott“

Þröstur segir skemmdarverk vofa yfir Sundhöll Reykjavíkur – „Sál hússins verður rifin á brott“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Telur bongóblíðu vera á næsta leiti og 28. maí sé lykildagurinn – „Við gætum átt mjög flotta og gleðilega sumardaga framundan“

Telur bongóblíðu vera á næsta leiti og 28. maí sé lykildagurinn – „Við gætum átt mjög flotta og gleðilega sumardaga framundan“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Steina segist hafa gert allt sem hún gat til að bjarga lífi sjúklingsins

Steina segist hafa gert allt sem hún gat til að bjarga lífi sjúklingsins
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Meintur ofbeldismaður fær ekki að vera viðstaddur þegar eiginkona og sonur bera vitni

Meintur ofbeldismaður fær ekki að vera viðstaddur þegar eiginkona og sonur bera vitni
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Yfirlýsing Öfga um MA-málið – Fordæma afsökunarbeiðni og vinnu ráðgjafahóps

Yfirlýsing Öfga um MA-málið – Fordæma afsökunarbeiðni og vinnu ráðgjafahóps