fbpx
Laugardagur 25.mars 2023
Fréttir

Íbúi kemur Elíasi til varnar – „Hlutirnir eru ekki bara svartir og hvítir, þetta er eineltismál líka“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 2. mars 2023 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þessi maður er dagfarsprúður. En þegar fólk er reitt þá er auðvelt að ná því,“ segir íbúi í Reykjanesbæ og fyrrverandi nágranni Elíasar Georgssonar, 60 ára verkfræðings sem kærður hefur verið til lögreglu fyrir frelsissviptingu og líkamsárás á dreng á 12. ári.

Sjá einnig: Elías frelsissvipti og réðst á 11 ára dreng vegna dyraats – Hefur ítrekað beitt hrekkjalóma ofbeldi

RÚV greindi frá því í gær að mál Elísar frá því á sunnudagskvöld væri til rannsóknar hjá lögreglu. Í frétt RÚV kom fram að drengurinn, ásamt fleiri drengjum, hafi gert dyraat hjá Elíasi. Elías er í kjölfarið sakaður um að hafa setið fyrir drengjunum síðar um kvöldið, ráðist að þeim og dregið einn þeirra inn á heimili sitt þar sem hann læsti drenginn inni. Hélt hann drengnum föstum í tæplega níu mínútur og neitaði að hleypa honum út. Hafi foreldri eins drengjanna þurft að brjóta rúðu á útidyrahurð mannsins til að komast þangað inn og frelsa drenginn.

Eins og kom fram í frétt DV um málið hefur Elías að minnsta kosti tvisvar verið ákærður fyrir sambærileg brot.

DV hefur heyrt þær raddir að vítahringur hafi skapast vegna viðbragða Elíasar við bjölluati, sem valdi því að börnum þykir spennandi og eftirsóknarvert að gera at hjá honum. Einn íbúi gengur svo langt að segja að einelti og áreitni í garð Elíasar nái áratugi aftur í tímann:

„Hlutirnir eru ekki svartir og hvítir. Ég þekki þennan mann ekkert nema það að ég veit bara að við stríddum honum allir, ég og vinir mínir. Það er önnur hlið á þessu. Þetta er eineltismál líka. Börnin hans voru líka lögð í einelti,“ segir fyrrverandi nágranni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Aðstæður erfiðar og krefjandi við banaslysið í Glym

Aðstæður erfiðar og krefjandi við banaslysið í Glym
Fréttir
Í gær

Bandamaður Pútíns varar við – „Afleiðingarnar fyrir alþjóðalög verða gríðarlegar“

Bandamaður Pútíns varar við – „Afleiðingarnar fyrir alþjóðalög verða gríðarlegar“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minningarreikningur stofnaður fyrir systkini Þuríðar Örnu: „Skilur eftir sig tómarúm sem erfitt verður að fylla“

Minningarreikningur stofnaður fyrir systkini Þuríðar Örnu: „Skilur eftir sig tómarúm sem erfitt verður að fylla“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðir laut í lægra haldi fyrir Fæðingarorlofssjóði – Taldi að um hagsmunamál fyrir íslenska lækna væri að ræða

Móðir laut í lægra haldi fyrir Fæðingarorlofssjóði – Taldi að um hagsmunamál fyrir íslenska lækna væri að ræða
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kínverjar hafi sent Rússum vopn með leynd

Segir að Kínverjar hafi sent Rússum vopn með leynd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gallharðir erlendir áróðursmeistarar Pútíns funduðu í Moskvu

Gallharðir erlendir áróðursmeistarar Pútíns funduðu í Moskvu