fbpx
Laugardagur 27.júlí 2024
Fréttir

Signý getur ekki orða bundist: Segir að þetta verði aldrei framar í boði á hennar heimili

Ritstjórn DV
Föstudaginn 8. desember 2023 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég get ekki lengur orða bundist. Heimurinn er vondur, versnar og verst finnst mér að íslenskir ráðherrar verða bara verri og verri,“ segir Signý Jóhannesdóttir, 66 ára fyrrverandi formaður Stéttarfélags Vesturlands, í aðsendri grein á Vísi í morgun.

Signý er þekkt fyrir að tala hreint út og það gerir hún svo sannarlega í grein sinni í morgun.

Hún er verulega ósátt við Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra vegna þess hvernig yfirvöld koma fram við börn og fatlað fólk á flótta. Nefnir hún í því samhengi mál Hussein Hussein og fjölskyldu hans og mál tveggja palestínskra frænda sem eiga yfir höfði sér brottvísun frá landinu.

Batt vonir við að ástandi myndi batna

„Ég hafði ekki mikla trú á fyrrverandi dómsmálaráðherra og batt vonir við að ástandið myndi batna með nýjum ráðherra. Greinilegt er að þar fer kona sem ber ísdrottingartitilinn með rentu,“ segir Signý og vísar í tengsl Guðrúnar við Kjörís í Hveragerði en faðir hennar stofnaði fyrirtækið og sjálf var Guðrún lykilstarfsmaður þess til fjölda ára.

Signý segir að hún hafi í gegnum tíðina mótmælt ýmsu á sinn hátt og nefnir hún nokkur dæmi.

„Ég sagði mig úr þjóðkirkjunni vegna framkomu biskupa við fórnarlömb kynferðisofbeldis. Flokksskírteinið í Samfylkingunni fauk þegar þingmenn hennar samþykktu sérreglur um lífeyrissjóði fyrir þingmenn og ráðherra. Ég sagði upp áskrift af Morgunblaðinu þegar ákveðinn fyrrum ráðherra varð þar ritstjóri. Þegar blöðin héldu áfram að berast safnaði ég þeim í gulan Bónusboka og færði þeim ruslið í Hádegismóana. Eftir að hafa verið á kvennaráðstefnu í Svíþjóð þar sem starfsmannastjóri HM tókst á við forystukonu verkafólks í textíliðnaði í Bangladesh, í pallborði, hef ég ekki stigið inn í þá sjoppu. Ég hef meira að segja farið heim til eins barnabarnsins míns eftir að hafa gefið því fyrstu skólatöskuna og tekið hana af barninu, þegar ég áttaði mig á því að hún var framleidd af ísraelsku fyrirtæki. Já og ég flýg ekki með Play.“

Framkoma sem hvorki siðað fólk né hundar láta bjóða sér

Signý segist vita að þó „ein kerling“ sitji föst á sinni sérvisku verði ekki héraðsbrestur en hana langi samt að gera tilraun til að hafa áhrif á aðra. Ef það verður til þess að fleiri taki afstöðu og standi með skoðunum sínum.

„Ég hef átt samtal við labradorhundinn minn hann Rósmund Stubbsson til að reyna að fá hann í lið með mér og koma og skíta á tröppurnar hjá dómsmálaráðherra, til að mótmæla því hvernig hún kemur fram, eða lætur kerfið koma fram við börn og fatlað fólk á flótta. Síðustu afrek hennar eru vegna þessara tveggja palestínsku drengja og svo Hussein Hussein og fjölskyldu hans. Þetta er framkoma sem siðað fólk og hundar láta ekki bjóða sér.“

Signý segir svo að lokum í grein sinni:

„Ég er ekki alveg búin að sannfæra Rósa um að taka þátt í þessari frönsku aðferð með mér, því bæði þykir honum vænt um eigin úrgang og svo elskar hann ís. Eitt er þó víst að Kjörís verður aldrei framar í boði á mínu heimili.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt