Maðurinn sem lést í vinnuslysi í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag hét Ólafur Pétur Hermannsson.
Lögreglan á Suðurnesjum greindi frá þessu í morgun.
Ólafur var fæddur árið 1961 og var búsettur í Garði. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og tvo syni.