fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Mörg þúsund Úkraínumenn flýja herkvaðningu

Ritstjórn DV
Laugardaginn 25. nóvember 2023 09:30

Úkraínskir hermenn við stórskotaliðsbyssu í Kherson. Engin eftirlíking hér á ferð. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það að karlar flýi er útbreiddur vandi,“ sagði Fedir Vanislavksii, talsmaður Volodymyr Zelenskyy Úkraínuforseta, í samtali við BBC þegar hann var spurður út í hvort margir úkraínskir karlmenn flýi land til að komast hjá því að verða kvaddir í herinn.

„Hvað á ég að gera?“ spurði Yevgeny þegar fréttamaður BBC ræddi við hann um stríðið og herkvaðningu en hann hræðist að verða kvaddur í herinn. „Það eru ekki allir hermenn. Það þarf ekki að harðloka landinu. Það er ekki hægt að þjappa öllum saman eins og var gert í Sovétríkjunum,“ sagði hann.

Hann er meðal þeirra 20.000 úkraínsku karlmanna sem hafa flúið land að mati rannsóknarhóps BBC sem hefur kortlagt hvar menn fara helst ólöglega úr landi en það er við landamærin að Póllandi, Rúmeníu, Moldóvu, Ungverjalandi og Slóvakíu.

21.000 til viðbótar hafa reynt að flýja en verið stöðvaðir.

Tæp tvö ár eru síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og eins og Rússar þá reyna Úkraínumenn nú að styrkja her sinn. En hver staða hans er, er ekki vitað því Úkraínumenn deila litlum sem engum upplýsingum um her sinn og hafa ekki veitt neinar upplýsingar um mannfall í eigin röðum.

Þeir veita heldur ekki upplýsingar um hversu margir eru í hernum en í september sagði Rustem Umerov, varnarmálaráðherra, að rúmlega 800.000 menn séu undir vopnum.

Í sumar kom fram að bandarísk stjórnvöld telja að um 70.000 úkraínskir hermenn hafi fallið í stríðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“

Guðmundur í Brim sakaður um billegan orðhengilshátt í Bítinu í morgun – „Það á enginn fiskinn í sjónum“
Fréttir
Í gær

Landbúnaðarháskólinn vill láta bera þýska konu út úr leiguhúsnæði

Landbúnaðarháskólinn vill láta bera þýska konu út úr leiguhúsnæði
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Egill kemur þéttingu byggðar til varnar – „Nauðsynleg og óhjákvæmileg“

Egill kemur þéttingu byggðar til varnar – „Nauðsynleg og óhjákvæmileg“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fráleitt að rugla skipulag Grafarvogs með þéttingu – „Borgarstjórnin nýja getur enn þá hætt við“

Fráleitt að rugla skipulag Grafarvogs með þéttingu – „Borgarstjórnin nýja getur enn þá hætt við“