fbpx
Miðvikudagur 21.maí 2025
Fréttir

Úkraínsku gagnsókninni er að ljúka – Þetta segja sérfræðingarnir um hana

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 7. nóvember 2023 04:33

Úkraínskur hermaður við víglínuna. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í upphafi átti gagnsókn úkraínska hersins gegn rússneska innrásarliðinu að hefjast í vor en það dróst á langinn og þess í stað hófst hún í sumar og hefur staðið fram á haust. En nú bendir margt til að henni sé að ljúka. En hver er árangurinn af henni?

Ekki þarf að leita lengi þar til maður finnur orð eins og „fíaskó“ og „misheppnuð“ þegar gagnsókninni er lýst.

B.T. leitaði til Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðings við danska varnarmálaskólann, og Claus Mathiesen, lektors við danska varnarmálaskólann, og spurði þá hvernig þeir telja að gagnsóknin hafi gengið og hvort henni sé lokið.

„Úkraínsku gagnsókninni er líklega lokið og ef henni er ekki alveg lokið, þá sjáum við nú síðustu hluta hennar,“ sagði Nielsen og Mathiesen tók undir þetta og sagði að hún muni væntanlega ekki skila miklum árangri það sem eftir lifir árs.

Eins og áður sagði þá varð nokkur bið á því að gagnsóknin hæfist og það var ekki fyrr en í sumar sem það fór að bera á hreyfingum úkraínskra hersveita. Talað var um að hluti af markmiðinu með gagnsókninni væri að ná bænum Tokmak í Zaporizjzja úr höndum Rússa. Bærinn er nærri mörgum mikilvægum samgönguæðum og það myndi gera Rússum mjög erfitt fyrir ef Úkraínumenn næðu bænum á sitt vald.

Enn metnaðarfyllra markmið var að komast alla leið að Azov hafi og þar með skera það svæði, sem Rússar hafa á sínu valdi, í tvennt og þar með einangra Krímskaga.

En nú er kominn nóvember og gagnsóknin hefur staðið yfir í hálft ár og Úkraínumenn eru víðs fjarri því að ná að Azov hafi og eru um 20 km frá Tokmak.

Nielsen sagði að gagnsóknin hafi ekki uppfyllt þær væntingar sem voru gerðar til hennar. „Margir höfðu vonast eftir góðum árangri, nánst að Úkraína myndi sigra í stríðinu. En það er víðsfjarri því,“ sagði hann og bætti við að sóknin hafi ekki verið sú skyndilausn sem sumir hafi talið að hún yrði. „Úkraína hefur ekki náð neinum árangri sem breytir gangi stríðsins svo máli skiptir,“ sagði hann.

Nielsen og Clausen segja þó að ekki sé um eintómt svartnætti að ræða fyrir Úkraínumenn. „Þrátt fyrir að gagnsóknin hafi ekki skilað tilætluðum árangri, þá hefur hún sýnt að Úkraína á möguleika,“ sagði Nielsen og bætti við að í vetur geti Úkraínumenn sparað skotfæri, þjálfað hermenn, tekið við hergögnum frá Vesturlöndum og því henti það þeim kannski mjög vel að vera í vörn næstu mánuðum því það sé mjög erfitt og dýrt að sækja fram.

Mathiesen tók undir þetta og sagði að ef veðrið verður gott næsta vor þá geti verið að Úkraínumenn nái einhverjum árangri. Enn streymi vopn til þeirra en það verði eitthvað að gerast á næsta ári.

Hvað varðar árangurinn af gagnsókninni á þessu ári sagði Mathiesen að hún hafi ekki skilað þeim árangri sem Úkraínumenn vonuðust eftir en Rússar hafi heldur ekki sigrað þá.

Nielsen var harðorðari og sagði að sóknin hafi tvímælalaust verið vonbrigði. Nú sé kominn tími til sjálfsskoðunar, ekki aðeins í Úkraínu heldur einnig hjá NATO og í Bandaríkjunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Ein manneskja lét lífið í sprengingu í íbúðarhúsnæði á Tenerife

Ein manneskja lét lífið í sprengingu í íbúðarhúsnæði á Tenerife
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Kvalin af verkjum í þrjú ár en VÍS gaf sig ekki og neitaði að borga

Kvalin af verkjum í þrjú ár en VÍS gaf sig ekki og neitaði að borga
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í búningsklefa í Reykjavík

Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í búningsklefa í Reykjavík
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Mál séra Friðriks ekki opnað að nýju: „Þar með var settur punktur við þetta erfiða mál“

Mál séra Friðriks ekki opnað að nýju: „Þar með var settur punktur við þetta erfiða mál“
Fréttir
Í gær

Þurftu að aflífa tvo hross í Hornafirði – „Við verðum að beita aflífun ef dýr er komið á þann stað að ekki er talið að hægt sé að bjarga þeim“

Þurftu að aflífa tvo hross í Hornafirði – „Við verðum að beita aflífun ef dýr er komið á þann stað að ekki er talið að hægt sé að bjarga þeim“
Fréttir
Í gær

Óprúttnir aðilar hafa undanfarnar vikur haft um 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum á Íslandi – lögreglan segir að svona beri svikararnir sig að

Óprúttnir aðilar hafa undanfarnar vikur haft um 100 milljónir af fólki og fyrirtækjum á Íslandi – lögreglan segir að svona beri svikararnir sig að
Fréttir
Í gær

Biggi lögga er hættur í löggunni: „Heldur betur komið að kaflaskilum“

Biggi lögga er hættur í löggunni: „Heldur betur komið að kaflaskilum“
Fréttir
Í gær

Egill segir „Klondyke-æði“ á bílaplönum – Gjöldin margfaldast á nokkrum klukkutímum

Egill segir „Klondyke-æði“ á bílaplönum – Gjöldin margfaldast á nokkrum klukkutímum