Samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg mun Bílastæðasjóður Reykjavíkur hætta frá og með þriðjudeginum 7. nóvember að prenta út álagningarseðla vegna stöðvunarbrotagjalda og setja undir rúðuþurrku bifreiða. Þess í stað birtast álagningarseðlar í heimabanka umráðamanns eða eiganda bifreiðar og inn á persónulegu pósthólfi viðkomandi á Island.is.
Samkvæmt tilkynningunni á þetta við hvort sem lagt er á aukastöðugjald vegna þess að ekki er greitt fyrir stæði eða stöðubrotsgjald fyrir að leggja ólöglega.
Segir enn fremur að þetta sé eitt af fyrstu skrefunum í innleiðingu nýrrar tækni í eftirliti með stöðvun og lagningu bifreiða, auk þess sem það sé umhverfisvænna að sleppa prentun. Fyrst um sinn verði settir forprentaðir miðar undir rúðuþurrku, sem minni á þessa breytingu.