Rússneskar ríkissjónvarpsstöðvar sýndu í síðustu viku myndir frá fundi Pútíns með Troshev þar sem þeir ræddu nýtt hlutverk hans hjá varnarmálaráðuneytinu.
Niklas Rendeboe, sérfræðingur í málefnum Wagner-hópsins og sérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við TV2 að á fundinum hafi Pútin gert Troshev að yfirmanni þess verkefni ráðuneytisins sem snýst um að fá sjálfboðaliða til að ganga til liðs við herinn. Ef honum takist að fá sjálfboðaliða til að ganga til liðs við herinn geti það skipt miklu máli fyrir Rússa.
Troshev gekk í herinn þegar hann lauk menntaskólanámi. Hann vann sig upp innan hersins og endaði með að vera ofursti. Hann tók þátt í stríðunum í Afganistan og Téteníu og eftir því sem árin færðust yfir hann fékk hann viðurnefnið „hinn gráhærði“.
Hann fékk mikilvægt hlutverk 2014 þegar Wagner-hópurinn var stofnaður. Rendboe sagði að upplagt hafi verið að hafa hann með því hann hafi verið góður hermaður og það hafi Wagner haft þörf fyrir.
Hann var meðlimur í Wagner-hópnum þegar Yevgeny Prigozhin, þáverandi leiðtogi hans og eigandi, gerði uppreisn í sumar. Rendboe sagði að margt hafi komið fram sem bendi til að Troshev hafi ekki verið ánægður með uppreisnina og að sögur hermi að hann hafi verið varnarmálaráðuneytinu trúr. Þetta endaði með að honum var hent út úr Wagner-hópnum.
Fimm dögum eftir uppreisnina var tilkynnt að Troshev ætti að stjórna Wagner-hópnum í Úkraínu og nú hefur honum einnig verið falið að fá menn til að ganga sjálfviljugir til liðs við rússneska herinn.
Rendboe sagði að talið sé að Troshev þekki hermennina sem þetta snýst um og hann þekkir Wagner-hópinn vel.
Pútín benti einmitt á þetta í sjónvarpinu: „Þú þekkir nú þegar þau vandamál sem þarf að leysa svo bardagarnir geti haldið áfram á sem bestan og áhrifamestan hátt,“ sagði Pútín. Með þessu hafi Pútín sent ákveðin skilaboð.