fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Blekkja Rússa með fallbyssum úr plasti og timbri

Ritstjórn DV
Föstudaginn 29. september 2023 08:00

Úkraínskir hermenn við stórskotaliðsbyssu í Kherson. Engin eftirlíking hér á ferð. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það að blekkja óvininn er hluti af stríðinu í Úkraínu. Fyrirtækið Metinvest hefur gert það að sérsviði sínu að framleiða eftirlíkingar af vopnum sem eru notaðar til að blekkja Rússa og fá þá til að nota rándýr flugskeyti á þessar ódýru eftirlíkingar.

Áður var sérsvið Metinvest námuvinnsla og stálvinnsla en nú framleiðir fyrirtækið eftirlíkingar af hergögnum í verksmiðju á leynilegum stað.

Meðal þess sem fyrirtækið framleiðir eru eftirlíkingar af fallbyssum. Þeim er komið fyrir nærri fremstu víglínu svo að Rússar telji þær raunverulegar og og noti rándýr flugskeyti, sem eru einnig af skornum skammti, til að eyðileggja þær.

Danska ríkisútvarpið skýrir frá þessu og hefur eftir starfsmanni fyrirtækisins, sem nýtur nafnleyndar af öryggisástæðum, að þessa dagana fái úkraínski herinn alla framleiðslu fyrirtækisins og það honum að kostnaðarlausu.

Nú tekur það starfsmenn fyrirtækisins fjóra daga að setja eina fallbyssu saman en í upphafi tók það mun lengri tíma en æfingin hefur svo sannarlega skapað meistarann í þessum efnum. Í upphafi tók það tvær þrjár vikur að smíða eina fallbyssu. Fyrstu módelin voru ekki nægilega vel gerð til að villa um fyrir Rússum en nú er sagan önnur. Búið er að bæta tæki, sem sendir frá sér hita sem sést í innrauðum myndavélum, við módelin. Þannig er hægt að blekkja Rússana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin