Leyniþjónustan FSB hefur bætt mjög í leitina að föðurlandssvikurum og njósnurum eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. FSB hefur ekki þótt standa sig vel í Úkraínu og reynir því að sanna gildi sitt með því að hafa uppi á þeim sem taldir eru ógna öryggi landsins.
Hún hefur beint spjótum sínum sérstaklega að vísindamönnum og er það engin trygging fyrir þá að eiga áratuga feril að baki sem virtir vísindamenn. Því fékk Dmitry Kolker að kenna á. Hann var einn fremsti vísindamaður Rússa á sviði leisertækni. Hann starfaði við háskólann í Novosibirsk. Í júní á síðasta ári var hann handtekinn þar sem hann lá á sjúkrahúsi í borginni en þar gekkst hann undir krabbameinsmeðferð. Þrátt fyrir mótmæli rufu leyniþjónustumennirnir krabbameinsmeðferðina og fluttu hann til Moskvu til yfirheyrslu. En Kolker var ekki að gera sér upp veikindi. Hann lést þremur dögum eftir handtökuna af völdum krabbameins.
Aðrir hafa sloppið lifandi úr klóm FSB en hafa verið dæmdir í áralangt fangelsi eða sendir í þrælkunarbúðir en vist þar er oft ekkert annað en ávísun á dauðadóm.
Í júní var Valery Golubkin, 71 árs prófessor frá Moskvu, dæmdur í 12 ára fangelsi fyrir föðurlandssvik. Samstarfsfólk hans var einnig handtekið og er sakað um njósnir og föðurlandssvik.