fbpx
Þriðjudagur 13.maí 2025
Fréttir

Segir að Rússar hafi hugsanlega skotið sjálfa sig í fótinn

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 25. júlí 2023 04:05

Vladimír Pútín. Mynd/EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svartahafið er orðið stórhættulegur staður eftir að Rússar drógu sig út úr kornsamningnum við Úkraínu. Um leið standa Úkraínumenn eftir í erfiðri stöðu að mati hernaðarsérfræðings.

Frá því að samningurinn rann út hafa Rússar gert harðar árásir á kornbirgðageymslur og útflutningshafnir í Úkraínu. Kenneth Buhl, kapteinn og hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að úkraínskar hafnir séu mjög berskjaldaðar fyrir loftárásum Rússa því loftvarnir hafi að mestu verið settar upp lengra inni í landi til að verja Kyiv.

Kornsamningurinn gerði Úkraínu kleift að flytja korn á öruggan hátt fram hjá rússneskum herskipum í Svartahafi. Nú hafa Rússar tilkynnt að öll flutningaskip, sem nálgast úkraínskar hafnir, verði talin flytja búnað fyrir úkraínska herinn.

Buhl sagðist telja að Úkraínumenn hafi mjög takmarkaða möguleika á að hefja kornútflutning á nýjan leik um Svartahaf. Besti möguleiki þeirra sé líklega að setja upp skipalest skipa frá hlutlausum ríkjum, þar á meðal NATO-ríkjum, en það sé ekki hættulaus aðgerð. Líklega séu sprengjur í sjónum og Rússar bæti líklega jafnt og þétt við þær. Einnig séu rússneskir kafbátar á svæðinu. „Leyfðu mér að orða þetta svona: Ef ég væri á herskipi í Svartahafi myndi ég vera með björgunarvestið innan seilingar.“

Hann sagði að aðgerðir Rússa síðustu daga séu „augljóslega ólöglegar“. Ekki sé löglegt að ráðast á innviði, sem hafa ekki hernaðarlegt gildi, og ekki sé löglegt að hindra siglingar Úkraínumanna til og frá úkraínskum höfnum. Hins vegar hafi Rússar möguleika á að setja upp löglegt hafnbann en það krefjist þess að þeir lýsi yfir stríði en það fellur ekki vel að frásögn þeirra að um „sérstaka hernaðaraðgerð“ sé að ræða.

Útflutningur á hveiti er grunnstoðin í úkraínsku efnahagslífi og á því stóran þátt í að fjármagna stríðsrekstur Úkraínumanna. Af þeim sökum reyna Rússar nú að stöðva þennan útflutning.

En þetta getur verið sjálfsmark að mati Buhl: „Verð á korni mun hækka og það mun valda vandræðum í mörgum löndum sem hafa ekki enn tekið afstöðu í deilu Rússa og Úkraínumanna. En það getur í raun þýtt að löndin noti tækifærið til að sjá hver er  í raun og veru óþokkinn í þessari deilu. Með þessu geta Rússar hugsanlega hafað skotið sjálfa sig í fótinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár

Kópavogsbær fer í hart gegn ríkinu – Minnihlutinn segist ekkert hafa fengið að vita um málið í rúmt ár
Fréttir
Í gær

Lögregla sökuð um ólöglegar aðgerðir í Vestmannaeyjum – Ætluðu að brjótast inn á heimili gamallar konu

Lögregla sökuð um ólöglegar aðgerðir í Vestmannaeyjum – Ætluðu að brjótast inn á heimili gamallar konu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“

Leigubílstjóri skildi tvær konur eftir úti í hrauni í kolniðamyrkri – „Það er ekki hlaupið að því fyrir ferðamenn að leita réttar síns eftir svona“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fyrrum ráðherra og þingmaður VG hjólar í meirihlutann í borginni – „Fyrirsláttur, meinbægni og mismunun“

Fyrrum ráðherra og þingmaður VG hjólar í meirihlutann í borginni – „Fyrirsláttur, meinbægni og mismunun“