fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Fréttir

Segir að klasasprengjur fyrir úkraínska herinn leysi ákveðið vandamál fyrir Vesturlönd

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 11. júlí 2023 06:55

Sérfræðingur leitar að sprengjum í Kherson í Úkraínu. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, ákvað í síðustu viku að úkraínski herinn fái klasasprengjur frá Bandaríkjunum. Ákvörðunin fellur ekki í góðan jarðveg hjá öllum en Úkraínumenn fagna henni að vonum.

Rússar eru mjög ósáttir og hafa gagnrýnt þess ákvörðun harðlega en gleyma hins vegar að nefna að þeir hafa sjálfir notað klasasprengjur í stríðinu við Úkraínu. Þá hafa mannúðarsamtök áhyggjur af þessu því klasasprengjur springa ekki alltaf þegar þeim er ætlað að springa og geta legið árum og áratugum saman á og í jörðinni. Mörg dæmi eru um að óbreyttir borgarar, og þá oft börn, bíði bana eða verði fyrir alvarlegu líkamstjóni eftir að hafa komist í snertingu við slíkar sprengjur.

Klasasprengjur er vopn sem er hægt að kasta úr flugvél eða skjóta með flugskeyti. Um einhverskonar hylki er að ræða sem inniheldur mikið magn af litlum sprengjum. Hylkið opnast í loftinu og sprengjurnar, sem geta verið mörg hundruð í hverju hylki, dreifast á svæðið fyrir neðan.

Anders Puck Nielsen, hernaðarsérfræðingur hjá danska varnarmálaskólanum, sagði í samtali við Jótlandspóstinn að ein ákveðin ástæða sé fyrir að Úkraínumenn hafa þörf fyrir þetta umdeilda vopn. „Það leysir fyrst og fremst vanda Vesturlanda með að sjá Úkraínu fyrir nægilega miklum af skotfærum. Klasasprengjur eru áhrifaríkar og þetta stríð er orðið að stórskotaliðsstríði. Það er einfaldlega hægt að ná meiri árangri með færri sprengjum ef maður hefur klasasprengjur,“ sagði hann.

Hann sagði að klasasprengjur geti skipt miklu máli á vígvellinum. Aðalatriðið í þessu stríði sé að vera með yfirburði varðandi stórskotalið. Það sé stórt vandamál fyrir Úkraínu ef ekki sé hægt að sjá hernum fyrir nægum skotfærum fyrir stórskotaliðið til að halda aftur af Rússum og jafnvel vera með yfirburði yfir þá. Það sé nauðsynlegt til að sigra í stríðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Einar kærði mann fyrir hatursorðræðu og er ósáttur við viðbrögð lögreglunnar – „Rífið þá á hol, mígið á þá og lík þeirra“

Einar kærði mann fyrir hatursorðræðu og er ósáttur við viðbrögð lögreglunnar – „Rífið þá á hol, mígið á þá og lík þeirra“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Katrín og fjölskylda hennar urðu fyrir barðinu á berserknum á Flúðum – „Við hjónin vorum skíthrædd“

Katrín og fjölskylda hennar urðu fyrir barðinu á berserknum á Flúðum – „Við hjónin vorum skíthrædd“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lagði VÍS fyrir dómi eftir alvarlegt slys í sumarbústað – Sláttuvélablað skaust í fótinn

Lagði VÍS fyrir dómi eftir alvarlegt slys í sumarbústað – Sláttuvélablað skaust í fótinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastagestur á Flúðum handtekinn – „Fólk varð hrætt og er brugðið“

Fastagestur á Flúðum handtekinn – „Fólk varð hrætt og er brugðið“