Samgöngustofa Noregs hefur fyrirskipað Icelandair að endurgreiða farþega 176 norskar krónur, rúmar tvö þúsund og þrjúhundruð íslenskar, vegna þess að hann fékk ekki þá þjónustu sem hann hafði greitt aukalega fyrir. Farþeginn pantaði og greiddi fyrir meira fótapláss í flugi með Icelandair en að endingu fékk hann ekki aukaplássið því flugfélagið skipti um vél fyrir flugið. RÚV greindi fyrst frá íslenskra miðla en fjallað er um málið á vef Finans Avisen.
Álitið er þó ekki bindandi og því þarf Icelandair í raun ekki að hlíta niðurstöðunni þó að flest flugfélög kjósi að gera það.
Í umfjöllun norska miðilsins kemur fram að umræddur farþegi hafi átt bókað flug frá Reykjavíkur til Óslóar í september á síðasta ári. Hann hafi viljað greiða fyrir auka þægindi í fluginu og borgaði því 17 evrur fyrir meira fótapláss en almennir farþegar. Vegna tæknilegra vandamála hafi Icelandair þurft að skipta um flugvél í umræddu flugi með þeim afleiðingum að sætaskipan riðlaðist og farþeginn var snuðaður um fótaplássið sem hann hafði greitt fyrir.
Í kjölfarið óskaði farþeginn eftir því að upphæðin fyrir aukaplássið yrði endurgreidd en Icelandair hafnaði þeirri kröfu og vísaði í skilmála sína þar sem skýrt væri kveðið á um þetta.
Farþeginn kvartaði í kjölfarið til Samgöngustofu Noregs og þar tók fimm manna nefnd málið fyrir. Niðurstaða þeirra var að ákvæðið í skilmálum Icelandair ætti aðeins við ef farþeginn myndi sjálfur ákveða að hætta við þjónustuna eftir að hafa greitt fyrir hana. Í þessu tilviki hafi það verið flugfélagið sem skipti um vél og það getur ekki verið á ábyrgð farþegans. Hann ætti því rétt á þeirri þjónustu sem hann hafi borgað fyrir sem og rétt á endurgreiðslu ef að ekki var unnt að uppfylla þjónustuna.