Ökumaður vélhjólsins sem lést á föstudaginn í slysinu við Laugarvatnsveg hét Jón Jónsson. Slysið varð upp úr klukkan 18.00 á föstudaginn en tildrög slyssins eru enn til rannsóknar hjá lögreglu. Mbl.is greindi fyrst frá.
Eiginkona Jóns, sem kallaður var Jónbi, minntist hans í færslu á Facebook-síðu sinni. Sagði hún eiginmann sinn ahfa verið hrók alls fagnaðar og að hans væri sárt saknað.
„Við fjölskyldan sitjum hér saman í sárum og skiljum ekki hversu ósanngjarnt lífið getur verið,“ segir í færslunni.