fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

„Allir vita að við nálgumst“ – Kortið á bak við hann vekur mikla athygli

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 26. apríl 2023 04:14

Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar. Mynd:Úkraínska varnarmálaráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hvort sem manni líkar betur eða verr, þá nálgumst við orustu sem getur markað þáttaskil í úkraínskri hernaðarsögu. Þetta er staðreynd og allir vita þetta.“

Þetta sagði Kyrylo Budanov, yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar, í samtali við úkraínska miðilinn RBC.

„Hvenær þetta byrjar, verður áfram leyndarmál en allir vita að við nálgumst,“ bætti hann við.

Viðtalið er rúmlega 50 mínútur og var tekið upp fyrir nokkrum dögum. Í því lagði Budanov áherslu á að lokamarkmið Úkraínumanna sé enn að endurheimta hernumdu svæðin og koma á sömu landamærum og voru eftir hrun Sovétríkjanna 1991. Það þýðir að Donbas og Krím þurfa að komast aftur á úkraínskar hendur.

Hann sagði engu máli skipta í hvaða röð þetta verður gert og að líklega muni leyndarhjúpur hvíla áfram yfir aðgerðum úkraínska hersins.

„Ég tel að töluvert stórt landsvæði verði endurheimt með valdi í aðgerðinni. Í hvaða átt, hvar og hvenær vil ég ekki segja neitt um, því miður. Ef Krím verður síðasta svæðið sem verður frelsað, þá eru það lokin. Ef Krím verður frelsað fyrst, áður en Donbas verður frelsað, þá lýkur því ekki þar,“ sagði hann.

Yfir skrifborði hans er stórt kort af Moskvu, höfuðborg Rússlands. Það sést greinilega nokkrum sinnum í viðtalinu en ekki er minnst á það. En í eldra viðtali var hann spurður út í það. Þá svaraði hann: „Aðalmarkmið þeirra var Kyiv. Af hverju ætti ég ekki að skoða kort af Moskvu?“

The Washington Post segir að fyrir nokkrum mánuðum hafi Budanov undirbúið stóra árás á Moskvu og átti að gera hana þann 24. febrúar, þegar eitt ár var liðið frá því að innrás Rússa hófst.

Segir miðillinn að í árásinni hafi átt að nota „allt“ það leyniþjónustan gat dregið fram og byggir þetta á upplýsingum úr leyniskjölum Bandaríkjahers.

Bandaríkjamönnum tókst þó að koma í veg fyrir að árásin væri gerð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast