fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Krabbameinssjúkri íslenskri konu forðað frá fangelsi í Bandaríkjunum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 13. febrúar 2023 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það leit lengi út fyrir að íslensk kona sem býr í Michigan í Bandaríkjunum væri á leið í fangelsi vegna dauðsfalls manns eftir umferðaróhapp. Konan heitir Sarah Helena Wilhelmsen en óhappið átti sér stað í smábænum Berrien Springs í Michigan þann 30. janúar síðastliðinn. Í ítarlegri frétt á Vísir.is er rakið hvernig mál þróuðust og hvernig Sara hefur þurft að glíma við grimmt réttarkerfi um leið og hún tókst á við krabbamein.

DV greindi frá málinu í maí 2022. Sarah ók um götur Berrien Springs og var að hægja ferðina er 62 ára gamall nágranni hennar gekk í veg fyrir bílinn 0g varð fyrir honum. Sara hringdi á neyðarlínuna og gaf skýrslu hjá lögreglu. Tveimur dögum eftir slysið gekkst hún undir erfiða skurðaðgerð vegna krabbameins. Hún átti von á að hún væri laus allra mála hvað varðaði umferðarslysið en nágranninn sem varð fyrir bíl hennar lést á sjúkrahúsi tveimur vikum eftir slysið. Sara var í  kjölfarið ákærð  fyrir umferðarlagabrot sem leiddi til dauðsfalls („moving violation resulting in death“). Samkvæmt viðkomandi lagagrein liggur eins árs fangelsi við brotinu.

Í grein Vísis er rakið, út frá sjónarhóli Söru og frænda hannar Þrastar Þórðarsonar, sem hefur verið henni stoð og stytta í þessum hremmingum, að ákæran gegn henni hafi verið tilkomin vegna vafasamra vinnubragða lögreglu við rannsókn málsins og í lögregluskýrslunni séu að finna ósannindi, meðal annars séu með rakalausum hætti leiddar líkur að því að Sara hafi keyrt aftan á manninn, sem sé rangt.

Saksóknari í málinu gaf Söru kost á að játa á sig hraðakstur og ljúka málinu með sátt, og var þá fallið frá upphaflegri ákærunni. Sara segist hafa tekið þessu tilboði til að losna undan málinu þó að hún viti að hún sé saklaus af ásökun um hraðakstur. Sem nærri má geta hefur málið valdið Söru miklum þjáningum og vandræðum. Líf hennar stöðvaðist vegna málsins og krabbameinsmeðferðarinnar en núna horfir hún björtum augum fram á veginn:

„Þegar niðurstaðan var komin þá fannst mér loksins eins og ég gæti unnið almennilega úr þessu. Ég var búin að þurfa að harka af mér í marga mánuði, reyna eins og gat að vera sterk. Þegar málinu lauk þá gat ég einhvern veginn loksins andað léttar. Núna langar mig bara að púsla lífinu saman aftur,“ segir Sara í viðtali við Vísi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast