fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Páll spyr hvers vegna lekinn frá Landsrétti var ekki rannsakaður – „Sumir íslenskir blaðamenn eru jú hafnir yfir lög og reglur“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 26. júlí 2022 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja og meintur brotaþoli í máli sem er til rannsóknar hjá lögreglu og varðar byrlun, þjófnað á síma Páls og afritun á gögnum úr honum, gagnrýnir harðlega þá blaðamenn sem hafa stöðu sakbornings í rannsókn lögreglu á málinu, í nýjum pistli á Facebook.

Páll segist hafa orðið orðlaus við lestur pistils Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, um málið, en þar lýsti Þórður rannsókninni sem fjarstæðukenndu rugli. Páll gagnrýnir Þórð og aðra blaðamenn með stöðu sakbornings í málinu fyrir að tefja rannsókn málsins með því að reyna að komast undan yfirheyrslum:

„Það er ekki oft sem ég verð orðlaus og það vita þeir sem þekkja mig, en þegar mér var bent á að lesa þessi orð Þórðar Snæs sakbornings þá varð ég það „Sú rann­sókn, sem er fjar­stæðu­kennt rugl en látin drag­ast á lang­inn, er notuð í opin­berri umræðu til að tor­tryggja blaða­menn sem fjalla með gagn­rýnum hætti um Sam­herja.“

Fyrir það fyrsta eru það aðallega sakborningarnir sem hafa haldið umræðu um málið á lofti. Ég hef reynt að halda mig fjarri umræðunni meðan málið er til rannsóknar þó ég hafi einstaka sinnum séð mig tilneyddan að tjá mig, eins og nú.

Í öðru lagi þykir mér maður, sem ekki hefur mætt í skýrslutöku og veit ekki nema að litlu leyti um hvað rannsóknin snýst, taka ansi mikið upp í sig, hann ætti kannski að hafa samband við ritstjórann sinn og sakborninginn Þóru Arnórsdóttur og biðja hana um að hætta að tefja og mæta bara í skýrslutöku? Eftir það er honum frjálst að tjá sig.

Í þriðja lagi væri nú fróðlegt ef orð Evu Joly, sem sakborningurinn Þóra Arnórs tók viðtal við, væru rifjuð upp. Hún hélt því fram að bankamenn, sem hún hafði dæmt seka, myndu þyrla ryki í augu almennings og neyta allra lagalegra úrræða til að tefja og þvæla mál. Ég veit ekki betur en tveir sakborninga hafi nýtt dómskerfið að fullu, án þess svo mikið sem hafa mætt í eina yfirheyrslu og þar með tafið rannsókn sakamáls um nokkra mánuði sem er trúlega fáheyrt að það séu fjölmiðlamenn sem tefja rannsókn sakamáls.“

Lekinn úr Landsrétti

Eins og DV greindi frá fyrr í sumar láku upplýsingar úr Landsrétti um yfirheyrslur lögreglu yfir Páli við rannsókn málsins og rötuðu til eins sakborningsins, Þórðar Snæs.

Sjá einnig: Þórður með upplýsingar úr rannsókninni sem hann átti ekki að hafa – Páll segir fjórmenningana fá óeðlilega fyrirgreiðslu

Páll segir um þetta í nýju færslunni:

„Eitt af því sem hefur vakið furðu mína er að talsmaður Transparency international hefur af einhverjum orsökum ekki tjáð sig um einn anga málsins sem er sérstæður leki úr Landsrétti í lögmann sakbornings. Slíkt ætti samkvæmt viðmiðum Transparency vera merki um spillingu. En spilling og spilling er víst ekki sami hluturinn heldur ræðst af því hvort viðkomandi tengist Samherja eða tilteknum fjölmiðli. Sumir fjölmiðlamenn geta víst ekki verið sakborningar enda virðast þeir undanþegnir almennum hegningarlögum, amk að mati þeirra sjálfra. Aðrir fjölmiðlamenn hafa fengið reisupassann fyrir að gagnrýna þá sem eru öðrum kollegum þeirra þóknanlegir.“

Segir Páll að einhvern tíma hefði það þótt verðugt verkefni fyrir rannsóknarblaðamenn að kanna hver hefði lekið gögnum úr Landsrétti. Einnig kallar hann eftir niðurstöðu úr endurskoðun á siðareglum blaðamanna:

„Og það hefði nú einhvern þótt verðugt verkefni fyrir þessa margumtöluðu „rannsóknarblaðamenn“ að grafast fyrir um hver það væri sem hefði lekið gögnum úr Landsrétti. Nokkuð víst er að meira væri gert úr honum ef hann hefði verið á hinn veginn, þ.e. lekið til mín eða Samherja. En staðan er ekki sú og því er þögnin algjör. Önnur skýring gæti verið sú að einn starfsmaður Landsréttar er nátengdur einni fjölmiðlamanneskju. Það virðist hins vegar ekki þykja ástæða til að kanna þetta nánar.

Í fyrra samþykktu alþjóðasamtök blaðamanna nýjar alþjóðlegar siðareglur fyrir stéttina. Aðalsteinn Kjartansson, sakborningur og varaformaður Blaðamannafélags Íslands, situr í nefnd um endurskoðun íslensku siðareglnanna. Það virðist djúpt á drögum um endurnýjun þeirra enda erfitt að aðlaga sumt í alþjóðlegu reglunum að íslenskum veruleika. Sumir íslenskir blaðamenn eru jú hafnir yfir lög og reglur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala