

Á Fréttavaktinni í kvöld segjum við frá því að Rússar hófu miklar eldflaugaárásir á Úkraínu í morgun. Úkraínumenn segja að rúmlega 80 eldflaugum hafi verið skotið á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, og fleiri borgir. Óbreyttir borgarar leituðu skjóls í neðanjarðarlestargöngum og sungu þjóðsöngva.
Aðgerðir Rússa eru taldar hefndaraðgerðir eftir að brúin yfir Kerch-sund var sprengd upp á laugardag. Nýr herforingi hefur tekið við yfirstjórn rússneska hersins sem er talinn afar herskár og ófyrirleitinn.
Albert Jónsson sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum segir að miklir veikleikar séu í her Rússa og að það hafi komið berlega í ljós í árásum hans á Úkraínu. Innrásin gangi því illa og setji Pútín í vonda stöðu.
93 ára gamall rafvirki á Raufarhöfn, nýlega útnefndur iðnaðarmaður ársins, dregur enn rafmagn í hús. Við kynnumst leyndardómnum bak við það að eldast vel.