fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Reynir vonast til að innbrotið í Mannlíf upplýsist í dag – Líkur á að fylgst hafi verið með heimili hans í langan tíma

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 24. janúar 2022 10:30

Reynir Traustason. Mynd: Hákon Davíð Björnsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hver stendur að baki? Ekki opinberlega. Það er reyndar ágætur maður sem stýrir rannsókninni sem kom á föstudaginn og tók fingraför og er með þær upplýsingar sem við búum yfir. Ég held hann ætli að taka þetta alvarlega og ég trúi því að það sé þannig,“ sagði Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, við viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 í morgun, um innbrotið í bíl hans og inn á ritstjórnarskrifstofur Mannlífs fyrir helgi.

Reynir telur sig hafa upplýsingar um hverjir voru að verki en hann getur ekki sagt frá því opinberlega. Þeim upplýsingum hafi hann hins vegar komið til lögreglunnar. Kom fram í viðtalinu að Reynir vonast til að málið upplýsist í dag.

Reynir segist ekki trúa því að auðmaðurinn Róbert Wessmann hafi brotist inn en Róbert hefur birt yfirlýsingu þess efnis að hann hafi þar hvergi komið nálægt. Mannlíf og Róbert hafa staðið í deilum undanfarið vegna fréttaflutnings Mannlífs af málum Róberts. Nýlega krafðist erlend lögmannstofu fyrir hönd Róberts þess að Mannlíf léti af hendi gögn sem tengjast honum. Segir Reynir þær kröfur vera mjög óvenjulegar og ekki eiga sér neina lagastoð heldur settar fram til að ógna litlum fjölmiðli.

Reynir benti á að innbrotið í bíl hans og innbrotið inn á ritstjórnarskrifstofur Mannlífs hafi verið þaulskipulögð aðgerð. Sterkur grunur leikur á að menn hafi í langan tíma fylgst með heimili og ferðum Reynis og vitnar nágranni hans meðal annars um mann sem hafi setið klukkutímum saman fyrir utan heimili Reynis.

Þá vekur athygli að mennirnir sem brutust inn í bílinn og fundu þar lykla að ritstjórnarskrifstofum Mannlífs vissu nákvæmlega hvar þau húsakynni var að finna og að lyklarnir gengju að þeim, en ritstjórn Mannlífs er mjög illa merkt. Þar tóku menn eina tölvu traustataki, komust þar inn í ritstjórnarefni miðilsins og eyddu öllu efni út af vefnum. Tók sú aðgerð um fimm klukkustundir en vefurinn lá niðri  í sjö til átta klukkustundir að henni lokinni.

Reynir segir hafa orðið fyrir því sem ritstjóri DV að meðlimir Hells Angels samtakanna hafi ráðist inn á ritstjórnarskrifstofur blaðsins og tekið hann kverkataki. Þar hafi hins vegar verið um að ræða uppdópaða menn og einum þeirra hafi hann komið í fangelsi í tvo mánðuði.

„Það var allt önnur uppákoma, þar voru menn fylltir af dópi. Ég veit ekkert hvað þessir menn eru færir um að gera,“ sagði Reynir og benti á að aðgerðin hefði verið yfirveguð og þaulskipulögð.

„Þeir eyða í það dögum og vikum að plana þetta og eru fyrir utan heimili mitt. Hvað eru þeir færir um?“ sagði Reynir.  „Ég veit ekkert hvað þessir menn eru færir um að gera. Þeir stálu meira að segja hundabúrinu mínu og einhverjum gömlum gönguskóm.“

Reyni var bent á að Mannlíf hefði reitt marga fleiri til reiði en Róbert Wessmann með umfjöllun sinni og kannaðist hann við það. „Ég hef tekið margan slaginn, ég hef fengið mikið hól og mér hefur verið bölvað,“ sagði Reynir, sem ætlar ekki að láta þessar hremmingar verða til að hrekja sig úr blaðamennsku.

Aðspurður hvort hann teldi að Róbert Wessmann tengdist málinu með einhverjum hætti sagði Reynir: „Ég má ekkert segja um það. Ég ætla ekkert að lýsa hann saklausan eða sekan en það er augljóst í tímalínunni hvað er að gerast, það er herjað á okkur um gögn og svo gerist þetta í kjölfarið.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar