fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
Fréttir

Meintur kynferðisbrotamaður í farbanni eftir að hafa valdið usla á Akureyri – Ógeðfelldar lýsingar á hegðun mannsins á skemmtistað

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 8. júní 2022 16:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erlendur ríkisborgari sem undanfarið hefur búið á Akureyri hefur verið úrskurðaður í farbann til 29. júní. Landsréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra, en maðurinn áfrýjaði þeim úrskurði til Landsréttar.

Farbannskrafan er meðal annars rökstudd með því að maðurinn sé erlendur ríkisborgari og hafi engin bein tengsl við landið, hvorki atvinnu né fjölskyldutengsl. Enn fremur er vísað til alvarleika þeirra brota sem maðurinn er grunaður um.

Maðurinn er sagður hafa brotið kynferðislega gegn tveimur konum á skemmtistað á Akureyri þann 29. maí síðastliðinn. Í úrskurði héraðdóms er atvikum lýst svo:

„Lögregla kveður vitni hafa sagt að stúlka hafi komið hágrátandi niður á bar með fötin hálf niður um sig og sagt að maður hafi tekið niður um hana, farið með hana afsíðis og tekið getnaðarlim sinn út. Hún hafi náð að forða sér frá honum, farið niður að barnum, rætt við vitni og getað vísað á manninn. Maðurinn hafi séð að verið væri að benda á sig og reynt að hlaupa af vettvangi.

Brotaþolinn A hafi skýrt lögreglu frá því að erlendur maður með derhúfu og skegg hafi dregið hana framhjá barnum, bakvið tjöld á efri hæðinni. Þar hafi hann byrjað að kyssa hana en hún reynt að snúa andliti sínu frá honum. Því næst hafi hann dregið niður um sig buxurnar og vitnið séð getnaðarlim hans. Hann hafi svo ítrekað að komast undir pilsið hennar. Þá hafi hann einnig reynt að fara inn í hana með getnaðarlim sinn en hún náð að ýta honum frá. Brotaþoli hafi sagt að hann hafi komið við kynfæri hennar þegar hann reyndi að setja getnaðarlim sinn inn í hana. Hún hafi að lokum náð að koma sér í burtu frá honum.

Brotaþolinn B hafi skýrt lögreglu frá því að sami maður hafi kysst hana án samþykkis og káfað á henni í hennar óþökk.“

Úrskurði héraðsdóms og Landsréttar í málinu má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt

Hæstaréttarlögmaður segir mál Karls Inga kalla á tiltekt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“

„Ég held að þetta fyrirkomulag sé einstakt á heimsvísu. Við erum alltaf til staðar fyrir allt fólkið í landinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“

Páll flutti til Noregs og ber saman lífsgæði þar og á Íslandi – „Við eigum pening um hver mánaðamót“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nova flytur á Broadway

Nova flytur á Broadway
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt kaupréttakerfi nær til alls starfsfólks Nova

Nýtt kaupréttakerfi nær til alls starfsfólks Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingverðir sagðir hafa varnað því að fólk myndi gægjast inn um glugga – „Þetta þótti nokkuð óvenjuleg ráðstöfun“

Þingverðir sagðir hafa varnað því að fólk myndi gægjast inn um glugga – „Þetta þótti nokkuð óvenjuleg ráðstöfun“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“

19 ára sjálfboðaliði kom miður sín heim eftir sölu á Neyðarkallinum: „Hver eru skilaboðin frá þessu aumkunarverða fólki til næstu kynslóðar?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna

Kona úr Vogum sökuð um ofbeldi í garð sjúkraflutningamanns og lögreglumanna