Þetta sagði Peter Viggo Jakobsen, lektor við danska varnarmálaskólann í samtali við B.T. í tengslum við umsókn Finna og Svía um aðild að NATÓ. Hann sagði að umsóknir ríkjanna hljóti að leiða til naflaskoðunar í Rússlandi. Með innrásinni í Úkraínu hröktu Rússar Finnland og Svíþjóð í faðm NATÓ.
Hann sagði að innrásin í Úkraínu hafi þjappað NATÓ-ríkjunum þéttar saman og hlutlaus ríki eins og Finnland og Svíþjóð sjái sig tilneydd til að ákveða hvorum megin þau vilja standa, sem sagt með NATÓ.
„Rússneskir diplómatar sjá þróunina og ég er ekki í vafa um að einhver hjá rússnesku utanríkisþjónustunni hafi reynt að vekja athygli á að stríðið gegn Úkraínu sé ekki besta hugmynd í heimi en það eru ekki þeir sem ráða,“ sagði hann.
Hann sagði að aðild Finna og Svía að NATÓ breyti ekki miklu fyrir bandalagið né þjóðirnar tvær. Þær hafi í raun verið meðlimir í NATÓ í mörg ár. Þau hafi aðlagað heri sína að NATÓ og starfi mjög náið með NATÓ. Ef ríkin verði aðilar að NATÓ geti þau tekið þátt í fundum bandalagsins um skipulagningu varna og það auðveldi hlutina auðvitað en þetta verði engin bylting.
Hvað varðar viðbrögð Rússa við umsóknum Finna og Svía sagðist hann eiga von á að þeir muni rjúfa lofthelgi ríkjanna í framtíðinni og hugsanlega „dúkkar kafbátur upp einhvers staðar þar sem hann á ekki að vera“ sagði hann.