fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Hleruðu samtal rússneskra herforingja – „Verra en í Téténíu“ og „árásir úr öllum áttum“

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 25. mars 2022 06:55

Úkraínskur hermaður við lík rússneskra hermanna í Irpin. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneskar hersveitir eiga greinilega í vanda í Úkraínu. Þær glíma við erfitt veðurfar, birgðaskort og mikla mótspyrnu úkraínskra varnarsveita. Rússnesk yfirvöld staðhæfa að innrásin gangi eftir áætlun. Ef svo er þá verður að teljast undarlegt að áætlun þeirra hafi gengið út á að sækja aðeins inn í Úkraínu og staðnæmst svo til þess eins að verjast gagnsóknum Úkraínumanna.

Úkraínska leyniþjónustan, SBU, hefur birt hlerað samtal á Facebooksíðu sinni. Það er á milli rússnesks herforingja í fremstu víglínu og yfirmanna hans í Moskvu. Óhætt er að segja að samtalið dragi upp aðra mynd af stríðsrekstri Rússa en þeir segja opinberlega.

Í samtalinu segir herforinginn að stríðið sé „verra en í Téténíu“ en það þykir benda til að rússnesku hersveitirnar eigi erfitt með að fá nýja hermenn í stað þeirra sem hafa fallið. Hann kvartar einnig yfir því að helmingur hermannanna í herdeild hans séu með kalsár á fótum.

Í skýrslu frá bresku hugveitunni Rusi kemur fram að njósnir og upplýsingaöflun bendi til að rússnesku hersveitirnar glími við fjarskiptavandamál og því reyni hermenn að leysa úr þeim á óhefðbundinn hátt, til dæmis með því að nota farsíma sína og talstöðvar sem bjóða ekki upp á dulkóðuð samskipti.

Það virðist sem töluvert skorti upp á að búnaður rússnesku hermannanna sé nægilega góður fyrir aðstæðurnar í Úkraínu en myndir hafa verið birtar af rússneskum hermönnum í stolnum úkraínskum hermannastígvélum. Það bendir til að Rússunum finnist eigin stígvél ekki nægilega góð til að halda kuldanum frá fótunum.

Fyrrnefndur herforingi er talinn vera nærri Mykolaiv við Svartahafið en Rússar eru að reyna að ná bænum á sitt vald. Þeir hafa mætt harðri mótspyrnu og eitt sinn virðist sem skotið hafi verið á rússnesku hermennina af félögum þeirra. Þetta kemur fram í samtali herforingjans við yfirmenn sína í Moskvu. Hann segir aðstæðurnar vera „hörmulegar“ og endurtekur samtal við yfirmenn sína á fjórða degi stríðsins þar sem þeir sögðu að „þessari sérstöku hernaðaraðgerð“ ljúki á „nokkrum klukkustundum“.

Þetta eru nú orðnar ansi margar klukkustundir og á þeim hafa hermennirnir í hersveit hans ekki fengið nægilega mikið af tjöldum eða öðrum búnaði til að halda hita á sér. Þeir eru heldur ekki með nægilega góð skotheld vesti til að verja þá fyrir árásum „úr öllum áttum“ eins og herforinginn segir að sögn á upptökunni.

Harðir bardagar hafa geisað nærri Mykolaiv þar sem úkraínski herinn hefur með góðri aðstoð heimamanna varist af hörku. Bærinn er á mörkum víglínunnar í suðri og með því að halda honum hefur Úkraínumönnum tekist að koma í veg fyrir að Rússar komist til hafnarborgarinnar Odessa.

Mikið mannfall hefur að sögn orðið hjá bæði Rússum og Úkraínumönnum að sögn Washington Post en engar opinberar tölur um mannfallið hafa verið birtar. Vitaliy Kim, héraðsstjóri í Mykolaiv, sagði í samtali við Washington Post að Rússar fjarlægi ekki lík hermanna sinna sem liggja í kringum bæinn. „Hundarnir geta ekki borðað svona mikið. Ekki heldur úlfarnir,“ sagði hann. Hann ætlar að reyna að sjá til þess að líkin verði sótt svo hægt verði að koma þeim í hendur ættingja síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“

Hólmfríður óttast um líf sitt á bráðamóttökunni – „Get ekki orða bundist lengur“
Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir

Frá Kyrrahafi til Kalíningrad – Rússar eru hvergi öruggir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“

Páll segir borgarráð sýna sögu og menningu virðingarleysi og hunsa mótmæli íbúa – „Í stuttu máli er þetta leikrit“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“

Typpamynd af fyrrum eiginmanni tekin fyrir á þremur dómstigum og nú aftur í héraðsdómi – „Þú ert viðbjóður“