fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Segja heimavinnu forna hefð sem beri að afnema – „Þarna skapast mikil mismunun meðal barna“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 23. mars 2022 20:00

Mynd/Andrea Piacquadio hjá Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimanámið hefur fylgt flestum Íslendingum í gengum skólastigin, og ekki eru allir ýkja hrifnir af því fyrirkomulagi, þá einkum grunnskólabörnin. Samtökin Barnaheill- Save the Children á Íslandi, telja heimanámið vera forna hefð sem sé tími kominn til að afnema. Frá þessu greinir Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri innlendra verkefna hjá Barnaheillum í grein sem birtist hjá Vísi.

Margrét rekur að mikið hafi verið rætt undanfarin misseri um styttingu vinnuvikunnar til að skapa meiri frítíma fyrir fólk og fjölskyldur. Þetta sé ekki í fyrsta sinn sem sú umræða sprettur upp en árið 1972 hafi vinnuvikan verið stytt úr 44 stundum í 40 og hættu þá flestir að vinna á laugardögum auk þess sem vinnuvika skólabarna var stytt úr sex í fimm daga.

Síðan þá hafi margt vatn runnið til sjávar og samfélagið tekið töluverðum breytingum. Nú sé búið að lögfesta hér á landi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem kveði á um að öll börn eigi rétt á menntun, hvíld og tómstundum svo dæmi séu tekin. Eins er þar tekið fram að ekki megi mismuna börnum hvað varði þau réttindi sem kveðið er á um í sáttmálanum vegna stöðu þeirra eða foreldra. Engu að síður megi finna mismunun hér á landi sem sé að sumu leyti leifar fyrri tíma.

„Skóladagur grunnskólabarna byrjar yfirleitt upp úr klukkan átta að morgni og stendur fram eftir degi, þó mislangt eftir aldri barnanna. Eftir skóladaginn fara yngstu börnin gjarnan í frístund til um klukkan fjögur eða fimm. Sum þeirra eiga þess kost að sækja tómstundir sínar úr frístundinni en önnur þurfa að sækja tómstundir eftir að skóladegi líkur, gjarnan milli klukkan 16 og 19. „

Margrét rekur að eftir að heim er komið sé svo heimavinnan eftir. Það sé auka vinna sem bætt sé á börnin.

„Fleiri stærðfræðidæmi, meiri lestur, spurningar, sögur, ritgerðir og fleira. Jafnvel þarf að ljúka því sem ekki tókst að ljúka í skólanum. Þetta skal vinna eftir langan vinnudag. Örþreyttir foreldrar og börn leggjast yfir vinnuna meðan á matseld stendur. Jafnvel tekur heimavinnan það mikinn toll að svefntími barnanna skerðist.“

Margrét rekur að það skapist mikil mismunun meðal barna hvað varði heimanámið, mismunum sem sé ólögleg samkvæmt barnasáttmálanum.

„Foreldrar eiga mis auðvelt með að hjálpa börnum sínum með heimanám, enda er bakgrunnur þeirra, menntun og forsendur misjafnar. Þarna skapast mikil mismunun meðal barna, mismunun sem er ólögleg samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þau börn sem eiga hve erfiðast með að ljúka vinnu sinni eiga jafnvel erfiðast með að fá aðstoð heima. „

Ekki reiknar Margrét með því að launafólk yrði sátt ef þeim væri gert að sinna ákveðnum verkefnum heima hjá sér utan vinnutíma. Hvers vegna gildi þá annað um börnin?

„Hin aukna vitund um að skilja að frítíma og vinnu hefur ekki alls staðar náð til barna og fjölskyldna þeirra. Barnheill – Save the Children á Íslandi vilja hvetja skólasamfélagið á Íslandi að gefa börnum frí eftir að skóladegi lýkur. Samtökin hvetja alla skóla til að afnema heimavinnu og að allt það nám sem börnin eiga að sinna fari fram innan skólans. Í skólanum eiga börn að fá þá aðstoð sem þeim ber til að sinna námi sínu. Vitað er að víða hefur þessi forna hefð verið afnumin og það ber að þakka. „

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast
Fréttir
Í gær

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“