fbpx
Laugardagur 16.ágúst 2025
Fréttir

„Rússland er bara „cancelled“ og það er bara einangrun og allir hata okkur á einhvern hátt.“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 6. mars 2022 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Natashja, skáld og bóksali, var meðal gesta í Silfrinu í dag og sagði að það sé erfitt að vera frá Rússlandi í dag. Margir Rússar upplifi nú skömm út af innrás lands þeirra í Úkraínu en á sama tíma séu margir í afneitun.

„Ég meina það er mjög erfitt að vera hér og sjá allt þetta. Bæði því ég á marga vini frá Úkraínu, einn náinn vinur minn er frá Mariupol. Hann hefur ekki heyrt frá systur sinni í fjóra daga og það er ekkert internet, svo hann getur ekki hringt í neinn. Allir eru bara í áfalli. Og ég sé líka að margir rússneskir vinir mínir eru hættir að tala við foreldra sína,“ sagði Natashja.

Erfitt að ræða við fjölskylduna í Rússlandi

Hún segir að sjálf eigi hún erfitt að tala við sína eigin foreldra sem fylgist með stríðinu í gegnum rússneska fjölmiðla, en í Rússlandi er nú beitt mikilli ritskoðun. Til að mynda er fjölmiðlum meinað að kalla stríðið stríð heldur gert að tala um sérstakar hernaðaraðgerðir og mega ekki byggja fréttaflutning sinn á öðrum upplýsingum en þeim sem koma frá stjórnvöldum. Samfélagsmiðlar eru einnig undir mikilli ritskoðun og er búið að loka á Facebook og Twitter svo dæmi séu tekin.

Sjálfstæðir fjölmiðlar hafa þurft að hætta fréttaflutningi ef þeir vilja ekki ganga að ströngum skilyrðum stjórnvalda því annars eiga blaðamenn yfir höfðu sér allt að fimmtán ára fangelsi fyrir að dreifa „falsfréttum“.

Natashja segir foreldra sína trúa því sem þau sjá í rússneskum fjölmiðlum. Þau telja það vera sannleikann og að Vesturlandabúar séu heilaþvegnir í að halda einhverju öðru fram út af upplýsingastríði sem sé beint gegn Rússlandi.

Óttast að enginn taki á móti flóttamönnum frá Rússlandi

Natashja upplifir þó stuðning hér á landi. Hér geti einnig Rússar og Úkraínumenn studd hvert annað þó að orkan sé takmörkuð.

Natashja hefur áhyggjur af samlöndum sínum sem vilja sleppa undan stjórnvöldum í Rússlandi en hún telur ólíklegt að önnur ríki séu tilbúin að taka á móti rússneskum flóttamönnum.

„Engin mun vilja taka á móti flóttamönnum frá Rússlandi, þau hafa engan stað til að fara á.“

Hún sagðist vita til þess að þeir sem freisti þess að yfirgefa landið þurfi að svara spurningum um afstöðu þeirra til forseta landsins, Vladimir Pútíns ,og reiða fram síma sína þar sem samfélagsmiðlar, myndir, einkasamtöl og annað eru skoðuð.

Natashja segist sjálf hafa fundið fyrir skömm og veit til þess að margir Rússar finni fyrir því sama og líkir hún því við þá skömm sem Þjóðverjar fundu fyrir í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.

„Rússland er bara cancelled og það er bara einangrun og allir hata okkur á einhvern hátt.“

Hún segir að vinir hennar frá Rússlandi fái nú þau skilaboð frá úkraínskum kunningjum þar sem þeim er óskað dauða. „Sem er mjög skrýtið að upplifa, að einhver vilji að þú deyrð þegar þú gerðir ekkert.“

RÚV greindi frá því á dögunum að dæmi séu um að rússnesk börn á Íslandi verði fyrir aðkasti vegna innrásarinnar í Úkraínu. Þar var rætt við rússneskar konur sem eru búsettar á Íslandi sem lýstu mikilli vanlíðan, en báðar eru þær á móti Pútín og stríðinu.

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mótmælendur í Alaska lýsa yfir stuðningi við Úkraínu

Mótmælendur í Alaska lýsa yfir stuðningi við Úkraínu
Fréttir
Í gær

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan snýr aftur – „Frá dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum“

Kjartan snýr aftur – „Frá dýpstu hjartarótum þakka ég ykkur öllum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Davíð lýsir skelfilegri stöðu ungs manns eftir einelti á íslenskum vinnustað – „Fótur hans fór í mél“

Davíð lýsir skelfilegri stöðu ungs manns eftir einelti á íslenskum vinnustað – „Fótur hans fór í mél“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ugla svarar reiða pabbanum – „Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir er ekki niðurlæging í garð kvenna“

Ugla svarar reiða pabbanum – „Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir er ekki niðurlæging í garð kvenna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi

Erlendur síbrotamaður sem fór huldu höfði rekinn úr landi