„Sérfræðingarnir sem eru ósammála Covid-aðgerðum stjórnvalda fá hins vegar lítið sem ekkert vægi í umræðunni, skoðanir þeirra eru talaðar niður eða jafnvel látið eins og þeir séu ekki til. Þetta getur hvorki talist gott né hollt. Hér á landi hafa sóttvarnayfirvöld sagt að þau séu ekki alvitur og hafa, þegar vel liggur á þeim, beðið um gagnrýni. Verra er að þegar sú gagnrýni hefur komið hafa viðbrögðin verið ansi dræm og jafnvel hefur verið gert lítið úr þeim sem koma fram með hana,“ segir hún og nefnir þar sem dæmi meðferðina sem Jón Ívar Einarsson, prófessor við lyflæknadeild Harvard-háskólans hefur fengið.
Því næst víkur hún að Ragnari Frey Ingvarssyni, sérfræðingi í lyf- og gigtarlækningum og fyrrverandi yfirmanni Covid-göngudeildar Landspítalans. Hann hefur talað fyrir frekari afléttingu sóttvarnaaðgerða og er það ekki í fyrsta sinn sem hann gerir það. Segir Kolbrún innlegg hans mikilvægt en hún segist ekki ætla að dæma um hvort sóttvarnayfirvöld taki því af meiri fögnuðu en þeirri gagnrýni sem hefur komið fram til þessa.
„Það er mikilvægt að læknar tjái sig um Covid-ástandið, hvort sem þeir vilja ganga fullkomlega í takt við aðgerðir sóttvarnayfirvalda eða fara aðrar leiðir. Það má allavega ekki verða þannig að læknar veigri sér við að tjá sig af ótta við að vera kallaðir inn á teppi hjá yfirboðurum sínum og fái þar skammir fyrir að hafa „rangar“ skoðanir,“ segir Kolbrún.
Í lok leiðarans segir Kolbrún að það eigi að vera sjálfsagt og eðlilegt að hlusta á rök sérfræðinga sem eru á annarri skoðun en sóttvarnayfirvöld: „Í þessum málum, eins og öðrum, þarf að eiga sér stað málefnaleg umræða, án æsings og upphrópana.“