fbpx
Laugardagur 01.nóvember 2025
Fréttir

Grunur um ofneyslu fíkniefna

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 21. janúar 2022 05:12

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á þriðja tímanum í nótt var lögreglunni tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í Breiðholti. Honum var ekið á bráðadeild til aðhlynningar en grunur leikur á að viðkomandi hafi tekið of stóran skammt af fíkniefnum.

Töluvert var um kvartanir vegna hávaða frá íbúðum á höfuðborgarsvæðinu og sinnti lögreglan þeim verkefnum.

Á fyrsta tímanum í nótt var tilkynnt um eld í bifreið í Garðabæ. Reyndist vera minniháttar.

Einn ökumaður var kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum og annar var handtekinn grunaður um ölvun við akstur. Hann reyndist einnig vera sviptur ökuréttindum.

Kona var flutt á slysadeild á öðrum tímanum í nótt en hún var með áverka á höfði. Tilkynnt hafði verið um hana í Árbæ og að hún væri illa áttuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Banaslys á Reykjanesbraut: Var ofurölvi þegar ekið var á hann

Banaslys á Reykjanesbraut: Var ofurölvi þegar ekið var á hann
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur: „Við vissum að eitthvað hræðilegt hafði gerst“ – Þetta er það sem særir enn í dag

Ólafur: „Við vissum að eitthvað hræðilegt hafði gerst“ – Þetta er það sem særir enn í dag