Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Hefur blaðið eftir Elíasi Jónatanssyni, forstjóra Orkubús Vestfjarða, að raforkuskortur muni kosta Orkubúið tæplega 500 milljónir á næstu þremur mánuðum og ekki verði hjá því komist að velta þessum kostnaði yfir á neytendur. Þetta svarar til um 70 þúsund króna á hvern íbúa á Vestfjörðum.
Landsvirkjun hafði áður tilkynnt fiskimjölsverksmiðjum að þær myndu ekki fá að kaupa skerðanlega orku úr kerfum fyrirtækisins. Þurfa bræðslurnar því að brenna allt að 20 milljónum lítra af olíu á loðnuvertíðinni.
RARIK metur tjón sitt á um 300 milljónir en fyrirtækið verður af tekjum við flutning á raforku til bræðslnanna á Austurlandi og þarf að brenna olíu til kyndingar á Seyðisfirði.