Margrét Friðriksdóttir, frumkvöðlafræðingur, er afar umdeild en hún stjórnar hópnum Stjórnmálaspjallið á Facebook. Hún hefur staðið í deilum við Guðmund Franklín Jónsson, formann Frjálslynda lýðræðisflokksins, síðan hún sakaði hann um að hafa ekki greitt sér laun.
Sjá einnig: Varað við forsetaframbjóðanda vegna meintra vangoldinna launa
Í Facebook-færslu sem Margrét birti í gær segir hún að Glúmur Baldvinsson, frambjóðandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, hafi blokkað hana á Facebook eftir að Guðmundur Franklín bað hann um það.
Margrét telur að Guðmundur sé enn reiður vegna þess að hún sagði frá meintum svikum hans og spáir því að flokkurinn nái ekki 1% í komandi þingkosningum.
Í samtali við blaðamann þvertekur Glúmur fyrir þetta og segir orð Margrétar vera eintóma þvælu.
„Hvorki Gúndi né nokkur annar segir mér hvurn skal loka á eða mynda vináttu við. Hef ekki haft þessa konu á vinalista um langt skeið. Hvort ég blokkeraði hana eða hún mig fyrir löngu er mér nokk sama um,“ segir Glúmur og gefur í skyn að hann gæti hafa blokkað hana fyrir löngu síðan.