fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Sumarhús brann til kaldra kola við Elliðavatn – Líkamsárás í Breiðholti

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 28. desember 2021 05:57

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 02.49 í nótt var tilkynnt um eld í gömlu sumarhúsi við Elliðavatn. Slökkvilið og lögregla fóru á vettvang. Bústaðurinn var alelda og brann til kaldra kola. Ekki er vitað um eldsupptök. Í Breiðholti kom kona ein í samkvæmi um miðnætti og kýldi gestgjafann, sem einnig er kona, í andlitið. Hún skarst á augabrún og var flutt með sjúkrabifreið á Bráðadeild. Ofbeldiskonan var farin af vettvangi þegar lögreglan kom.

Á Seltjarnarnesi var tilkynnt um húsbrot, þjófnað, eignaspjöll og nytjastuld bifreiðar á ellefta tímanum í gærkvöldi. Yfirhöfn var stolið á veitingahúsi. Í henni voru lyklar að íbúð og bifreið. Þjófurinn fór inn á heimilið og stal verðmætum og bifreiðinni. Málið er í rannsókn.

Á sjötta tímanum í gær var kona handtekinn í Kópavogi grunuð um sölu og dreifingu lyfja. Hald var lagt á lyf. Konan var látin laus að skýrslutöku lokinni.

Um klukkan 20 var ofurölvi kona handtekin í Breiðholti og vistuð í fangageymslu.

Ökumaður var handtekinn í Árbæ um klukkan eitt í nótt en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.

Á fjórða tímanum í nótt var ökumaður handtekinn í Miðborginni. Hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum. Hann er einnig grunaður um nytjastuld bifreiðar, misnotkun skráningarmerkja og fleiri brot. Hann og farþegi í bifreiðinni voru vistaðir í fangageymslu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin