Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Fram kemur að Runólfur Pálsson, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs Landspítalans, hafi sagt að líklega skýrist á næstu dögum hver innlagnatíðnin vegna afbrigðisins er hér á landi því smitum sé farið að fjölga mjög hratt. „Það má segja að þessi bylgja í Danmörku sé kannski tveimur vikum á undan okkur. Það er ekki farið að reyna á þetta enn þá en það er líklegt að það muni gerast á næstu dögum,“ er haft eftir honum.
Hann sagði stöðuna á Landspítalanum vera erfiða því margir leiti nú þangað vegna annarra veikinda og nokkrir dagar geti liðið þar til fólk, sem greinist með smit, fái vaxandi einkenni og leiti til spítalans.
Hertar sóttvarnaaðgerðir tóku gildi á miðnætti. Ríkisstjórnin ákvað að fara að tillögum sóttvarnalæknis að mestu og herða aðgerðirnar vegna þeirrar óvissu sem fylgir Ómíkron.
Í minnisblaði sínu bendir sóttvarnalæknir á að fyrstu tölur bendi til að einkenni af völdum afbrigðisins séu vægari en ekki sé hægt að fullyrða hvort það valdi alvarlegri eða vægari veikindum.
Einnig kemur fram að rannsóknir á undanförnum vikum hafi sýnt að smithæfni Ómíkron sé að minnsta kosti helmingi meiri en smithæfi Delta. Í Danmörku hafa um 80% þeirra sem hafa greinst með Ómíkronafbrigðið fengið tvo skammta af bóluefni, 10% hafa fengið þrjár og 10% voru óbólusettir.