„Í september síðastliðnum rak Icelandair mig úr starfi. Var það gert með þeim hætti að stöðvarstjóri tilkynnti mér símleiðis að ég ætti von á uppsagnarbréfi með ábyrgðarpósti. Þann sama dag var samstarfsfólk mitt upplýst um uppsögnina og var borið við að um „trúnaðarbrest“ væri að ræða.“
Svona hefst pistill sem Ólöf Helga Adolfsdóttir, fyrrum trúnaðarmaður, öryggistrúnaðarmaður og eina fastráðna konan í hlaðdeildinni hjá Icelandair á Reykjavíkurflugvelli, skrifar en pistillinn birtist í Fréttablaðinu í dag. Þegar Ólöf Helga var rekin úr starfi í haust vakti það mikla athygli, ekki síst í ljósi þess að uppsögnin kom í þann mund er hún var í miðjum viðræðum við félagið um réttindamál starfsmanna.
Þrátt fyrir að það hafi verið sagt að ástæðan fyrir uppsögninni væri „trúnaðarbrestur“ þá segir Ólöf að það hafi ekki komið fram á fundinum um hvers eðlis þessi meinti trúnaðarbrestur var. „Seinna var það dregið til baka og enn síðar var gefið í skyn að ég væri erfið í samskiptum,“ segir hún.
„Þegar mér var sagt upp störfum var ég trúnaðarmaður, öryggistrúnaðarmaður og eina fastráðna konan í hlaðdeildinni. Ég var einnig flokksstjóri á minni vakt. Þar koma ævinlega upp mál sem þarf að leysa úr, eins og á öllum vinnustöðum. Það hafa komið upp tilvik þar sem ég hef lagt áherslu á hluti sem mættu betur fara og þá sérstaklega það sem snýr að öryggismálum.“
Ólöf segist ævinlega hafa komið fram við samstarfsmenn sína af velvild og sanngirni. „Enda eru strákarnir góðir félagar mínir og hafa sýnt mér ómetanlegan stuðning,“ segir hún.
Á vikunum áður en Ólöfu var sagt upp hafði hún átt í viðræðum við sína yfirmenn vegna ýmissa mála sem meðal annars snúa að hagræðingum og ýmsum breytingum á verklagi hjá hlaðdeildinni. Hún segir í pistlinum að þau samtöl hafi yfirleitt farið vel fram og að ekki hafi borið á neinum kala í sinn garð þrátt fyrir að ekki hafi allir verið alltaf sammála.
„Það er nú einu sinni svo, að trúnaðarmanni ber að standa vörð um réttindi og hagsmuni umbjóðenda sinna og sjá til þess að ákvæði kjarasamnings séu haldin. Nú ber svo við að Icelandair vill ekki kannast við að ég hafi verið löglega kjörinn trúnaðarmaður, þrátt fyrir að ég hafi ávallt verið boðuð á fundi fyrir hönd minna samstarfsmanna.“
Þrátt fyrir að Icelandair vilji ekki kannast við að Ólöf hafi verið löglega kjörinn trúnaðarmaður þá segist hún ávallt hafa verið ávörpuð sem slíkur í öllum samskiptum við Icelandair. „Ef meintir „samstarfsörðugleikar“ mínir eiga sér grunn í þeim fundum sem ég hef setið vegna trúnaðarstarfa, þá veltir maður vöngum yfir því hvort vandinn kunni að liggja Icelandair megin,“ segir hún.
„Hvað sem því líður, hvort ég hef verið hvöss, leiðinleg eða eitthvað annað, að þeirra sögn, þá hafði ég aldrei fengið áminningu fyrir brot í starfi.“
Ólöf segir að hún hafi átt samtal við yfirmann sinn vegna „samskiptaerfiðleika“ skömmu áður en til uppsagnarinnar kom en að það samtal hafi ekki uppfylt þær kröfur sem gerðar eru til áminningar.
„Sem trúnaðarmaður og flokksstjóri ber mér að standa upp og segja mína skoðun. Mér ber í ljósi stöðu minnar sem öryggistrúnaðarmaður að upplýsa stjórnendur um það sem bregðast þarf við áður en fólk slasar sig.“
Ólöf segist vera þakklát fyrir allan stuðninginn og samstöðuna sem hún hefur hlotið í kjölfar uppsagnarinnar. „Flugstéttarfélögin þrjú, Flugvirkjafélag Íslands, Flugfreyjufélag Íslands og Félag íslenskra atvinnuflugmanna, sendu frá sér samstöðuyfirlýsingar sem var ómetanlegt. Félagar okkar í Rafiðnaðarsambandi Íslands og ASÍ-UNG einnig,“ segir hún.
„Efling hefur staðið við bakið á mér og starfsfólkið stappaði í mig stálinu, og síðast en ekki síst vinir mínir í hlaðdeildinni á Reykjavíkurflugvelli sem skoruðu á Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, að draga uppsögnina til baka. Þeir stóðu saman allir sem einn því að þeir sáu mikilvægi þess að trúnaðarmaður þori að berjast fyrir samstarfsmenn sína.“
Hún segir þetta mál ekki snúast um sig og ekki bara um Eflingarfélaga. „Þetta mál er réttindamál fyrir alla launþega á Íslandi.“
Undir lokin á pistlinum undirstrikar Ólöf hve mikilvæg uppsagnarvernd trúnaðarmanna er, hún segir alla vita það og atvinnurekendur líka. „Þessi óforskammaða árás Icelandair á þessi grundvallarréttindi væri kannski ekki svona alvarleg ef ekki væri fyrir þá sök að Samtök atvinnulífsins styðja þennan gjörning Icelandair,“ segir hún.
„Ég vona að réttlætið nái fram að ganga og að Félagsdómur viðurkenni að Icelandair braut á mér. Ég vil líka að SA taki ábyrgð á sínu hlutverki í þessu öllu saman.“
Að lokum segir Ólöf að hún hafi ekkert að fela. „Í lokin vil ég taka skýrt fram að ég hef ekkert að fela, svo þegar Icelandair segir að málið sé viðkvæmt vil ég að fólk hafi í huga hvað Icelandair er að segja: Málið er eingöngu viðkvæmt fyrir Icelandair.“