fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Kamala Harris verður fyrsti kvenkyns forseti Bandaríkjanna í dag

Heimir Hannesson
Föstudaginn 19. nóvember 2021 15:14

Joe Biden og Kamala Harris - Mynd: EPA/Jim Lo Scalzo

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden Bandaríkjaforseti er á leið í ristilspeglun í dag og mun þurfa að gangast undir svæfingu vegna aðgerðarinnar. Vald forseta Bandaríkjanna mun því tímabundið flytjast til varaforseta Bandaríkjanna, Kamala Harris.

Slík valdatilfærsla er nokkuð algeng og er Biden fjarri því að vera sá fyrsti til þess að sigla í gegnum heilt kjörtímabil án þess að gefa valdið frá sér tímabundið til varaforsetans.

Hins vegar er valdatilfærslan í dag söguleg að því leiti að Kamala Harris verður í dag fyrsta konan til þess að fara með vald forseta Bandaríkjanna, þó tímabundið sé.

Það er ekki seinna vænna fyrir Biden að skella sér í ristilspeglun, en hann fagnar 79 ára afmæli sínu á morgun. Þá verða jafnframt 10 mánuðir liðnir frá því að hann tók við sem forseti.

Biden hefur verið opinskár um heilsu sína, þvert á forvera sinn sem veitti engar slíkar upplýsingar allt kjörtímabilið sem hann gegndi embættinu. Ristilspeglunin mun fara fram á hersjúkrahúsinu Walter Reed í Washingtonborg og er búist við að Biden verði orðinn forseti á ný áður en sólin sest á Hvíta húsið þetta föstudagskvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin