fbpx
Miðvikudagur 18.júní 2025
Fréttir

Sindri segir Kveiks-þáttinn hafa valdið raunverulegum skaða – „Glænýtt vopn í kassann sem þau munu vafalaust nýta óspart“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 6. nóvember 2021 07:30

Samsett mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Því meira sem ég velti fyrir mér drottningarviðtali Kveiks við leikarann Þóri Sæmundsson því minna skil ég hvernig vandaður fréttaskýringaþáttur gat talið þetta boðlegt efni.“

Svona hefst pistill sem Sindri Þór Hilmars- og Sigríðarson, markaðsstjóri og baráttumaður gegn nauðgunarmenningu, skrifar en pistillinn birtist á Vísi. „Ekki nóg með það að Þórir sýndi fátt, ef nokkuð, sem gefur til kynna að hann sé bættur maður og tilgangur viðtalsins því óljós í besta falli; heldur olli þátturinn raunverulegum skaða einstaklingum – þolendum í okkar samfélagi,“ segir sindri svo í pistlinum.

Sindri segir umræðuna vera komna að fullu í skotgrafir, hún sé fullkomlega pólaríseruð og því ólíkleg til að nálgast vitræna niðurstöðu. „Fremur en að einhverskonar samtal sé að eiga sér stað þá virðist fólk forherðast í skoðunum sínum og vaða þannig áfram á hnefunum,“ segir hann.

„Með máli Þóris eru svo gerendur og ötult stuðningsfólk þeirra komin með glænýtt vopn í kassann sem þau munu vafalaust nýta óspart, svona ef marka má ofgnótt vísana í hundinn Lúkas og ónefnda tjaldhæla. Ég bíð „spenntur“ eftir næsta máli sem kemst í umræðuna, hvar þolendur verða líklega sakaðir um að leggja gildrur fyrir gerendur sína. En síðast og alls ekki síst, því þetta er það versta, er fjöldinn allur af þolendum þarna úti sem líða miklar kvalir þessa dagana í kjölfar þáttarins og umræðunnar sem fylgir.“

„Það sem er löglegt er ekki alltaf eðlilegt, gott eða siðferðislega réttlætanlegt“

Sindri segir að mál á borð við þau sem Þórir hefur gengist við og sem konur hafa komið fram og lýst í samskiptum sínum við hann séu ein algengasta uppspretta geranda og þolenda kynferðismáli í samfélaginu hér á landi. „Myndarlegur „eldri“ karlmaður sem í krafti útlits eðs frægðar eða stöðu eða ríkidæmis sjarmerar til sín stúlkur á aldrinum 15 – 16 – 17 ára. Engin lög eru brotin og karlmennirnir labba í burtu eins og ekkert hafi í skorist, tilbúnir í leitina að þeirri næstu.“

Þrátt fyrir að engin lög séu brotin þá segir Sindri að stúlkurnar sitji eftir. „Gjarnan með stærðarinnar andlegan áverka; brotið traust, afar neikvæða kynferðislega upplifun á mesta mótunarskeiði kynþroskans, skömm og „leyndarmál“ sem þær þora gjarnan ekki að deila með öðrum, sem og möguleikann á stríðni, einelti og útskúfun ef upp kemst um málið meðal jafnaldra,“ segir hann.

„Í tilvikum sem þessum er sjaldnast um eiginlegt lögbrot að ræða því samkvæmt íslenskum lögum er einstaklingur talinn hæfur til að samþykkja kynlíf við 15 ára aldur. En það sem er löglegt er ekki alltaf eðlilegt, gott eða siðferðislega réttlætanlegt. Flest fullorðið fólk þarf ekki að hugsa sig lengi um til að sjá að einhverstaðar er pottur brotinn þegar barn stundar kynlíf með einstaklingi sem gæti verið foreldri þess.“

Þá vitnar Sindri máli sínu til stuðnings í ummæli Jófríðar Skaftadóttur þar sem hún lýsir samskiptum sínum við Þóri Sæmundsson í viðtali við Stundina

„Þetta var fyrir sjö árum. Ég var mjög ringluð á þessum aldri og brotin. Ég hitti hann eftir að við höfðum náð saman á Tinder. Í prófílnum mínum þar stóð að ég væri 18 ára en þegar ég og Þórir hittumst sagði ég honum strax að ég væri 16 ára. Honum fannst ekkert athugavert við það og við sváfum saman. Það var ekki þvingað samræði, en ég var svo ung og brotin að strax daginn eftir lokaði ég á öll samskipti við hann og reyndi að gleyma því sem hafði gerst,“ sagði Jófríður í viðtalinu.

Gerandinn orðinn þolandi og þolendur orðnir gerendur

Sindri segir að erfiðar lesningar bíði þolenda sem opna frétta- eða samfélagsmiðla þessa dagana, þar sé flóðbylgja af ummælum þar sem „fólk hellir úr hjartanu allri sinni samúð yfir vesalings Þóri, kallar eftir úrræðum og aðstoð til handa aumingja manninum, býður honum jafnvel vinnu“.

„Á sama tíma hella þau úr skálum reiði sinnar yfir stúlkurnar, „lólíturnar“ sem tældu blásaklausan manninn og höfðu þannig af honum lífsviðurværið og æruna. Gerandinn er orðinn þolandi og þolendur eru orðnir gerendur. Gaslýsingin er fullkomnuð!“ segir Sindri.

Sindri útskýrir hvers vegna hann kallar þetta gaslýsingu. „Ég segi gaslýsing því auðvitað var þetta ekki svo. Þarna voru ungar konur – stúlkubörn – settar í aðstæður sem þær hafa takmarkaða, ef nokkra reynslu eða þekkingu til að ráða við, af manni í yfirburðastöðu svo valdaójafnvægið er óumdeilanlegt,“ segir hann.

„Vitnum aftur í Jófríði: „Hann var ekki bara helmingi eldri en ég, og ég unglingur, heldur var hann líka frægur leikari.“ Á þessa þolendur – börn – vill hávær hluti samfélagsins setja alla ábyrgð á því sem átti sér stað. Er það nema von að þolendum svíði þessa dagana. Jófríður segir að viðtal Kveiks við Þóri, viðtal sem þjónaði akkúrat engum tilgangi, og þessi háværu viðbrögð séu eins og hlandblaut tuska í andlitið á þolendum. Ég held ég geti ekki orðað það neitt betur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025

Ragga Gísla útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur 2025
Fréttir
Í gær

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“

Hafdís er fundin! – „Hún er lítið á netinu og hafði hvorki séð Facebook færsluna né fréttir af leitinni að henni“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi

Akureyrarbær gerði ekkert vegna ófremdarástands á friðuðu húsi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan lýsir eftir Sigríði

Lögreglan lýsir eftir Sigríði