Á Keflavíkurflugvelli starfa bæði lögregluþjónar og tollverðir sem framlínustarfsfólk. Þessir hópar starfa að miklu leiti saman, en einungis lögregluþjónar eru bólusettir.
Samkvæmt heimildum DV eru tollverðir ósáttir með þetta. Þeim finnst þeir sinna jafn miklu framlínustarfi og lögreglan og finnst því ósanngjarnt að einungis annar hópurinn fái bólusettningu.
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var spurður út í þetta á upplýsingafundi almannavarna í dag. Hann sagði að það væri í lagi að skoða þetta tiltekna mál, en sagði þó að ef að hópur framlínustarfsfólks sem fer í bólusetningu yrði sífellt stækkaður myndi hópur aldraðra sem fær bólusetningu minnka á móti. Því sé erfitt að gera miklar breytingar sem þessar.
Birna Friðfinnsdóttir, formaður Tollvarðafélags Íslands, staðfesti að ósætti væri vegna málsins í samtali við DV. Hún ítrekaði að um væri að ræða tollverði sem ynnu á vettvangi, líkt og á Keflavíkurflugvelli, en ekki aðra tollverði sem gætu beðið líkt og annað fólk.
„Þeir eru mjög ósáttir að öryggi þeirra sé ekki tryggt líkt og starfsmanna í sambærilegum störfum“ sagði Birna um tollverði. Hún sagði upplifunina vera á þann veg að þeir hefðu gleymst.
Birna sagði að hún væri búin að ræða málið við Tollgæsluembættið og nú væri unnið að því að bæta stöðuna. Hún sagðist nokkuð bjartsýn á að eitthvað væri hægt að gera í þessu.
Þegar blaðamaður spurði Birnu út í svör Þórólfs á fundinum sagðist hún hafa misst af þeim, en af fyrstu áheyrn væri upplifun hennar þessi : „Ég skil vel að það þurfi að forgangsraða, en það er óásættanlegt að lögregluþjónar á vettvangi, landhelgisgæslan, fangaverðir og annað framlínustarfsfólk fái bólusetningu, en ekki tollverðir sem vinna við hlið lögreglunnar.“
Þá benti Birna einnig á að Keflavíkurflugvelli og á öðrum landamærum væri sérstaklega mikið um smit og því væri sérstakt að tollverðir sem ynnu þar fengju ekki bóluefni.