Mikill viðbúnaður er við Móskarðshnjúka vegna tveggja einstaklinga sem slösuðust í hlíðum fjallsins um tvö leytið í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.
„Fjöldi viðbragðsaðila á vegum björgunarsveita og slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins eru á svæðinu ásamt áhöf á þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Björgunarsveitarmenn og sjúkraflutningamenn eru komnir á vettvang á sexhjólum og fleiri eru á leiðinni“.