fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Lögregla segist ekki hafa beitt ofbeldi við handtöku – Staðfesta að mönnunum hafi verið vísað úr landi

Jón Þór Stefánsson
Fimmtudaginn 8. júlí 2021 18:57

mynd/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Embætti ríkislögreglustjóra vill meina að lögregla hafi ekki beitt ofbeldi við handtöku á hælisleitendum síðastliðinn þriðjudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embættinu. Þar kemur fram að myndefni af atvikinu hafi verið skoðað og telur lögregla ekki að um óþarfa eða óhóflega valdbeitingu hafi verið að ræða.

Einnig kemur fram að einstaklingarnir sem voru handteknir hafi verið vísað úr landi.

Lesa nánar: Annar hælisleitandinn endaði á sjúkrahúsi eftir handtöku lögreglu

Fjölmiðlar hafa fjallað um málið síðustu daga, en greint hefu verið frá því að hælisleitandi hafi endað á sjúkrahúsi eftir handtökunna, og þá var lögregla sökuð um að lemja manninn.

Yfirlýsing lögreglu er eftirfarandi:

„Embætti ríkislögreglustjóra vísar á bug ásökunum um að lögregla hafi beitt ofbeldi við handtöku síðastliðinn þriðjudag, eins og hefur verið haldið fram af viðmælendum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Farið hefur fram frumskoðun á myndefni af atvikinu af hálfu embættisins og bendir hún ekki til að um óþarfa eða óhóflega valdbeitingu hafi verið að ræða, miðað við þær aðstæður sem sköpuðust á vettvangi.

Líkt og fram kom í fréttatilkynningu embættisins vegna málsins í gær þá grípur lögregla aðeins til valdbeitingar þegar brýna nauðsyn krefur. Ákvörðun um slíkt er ávallt tekin samkvæmt mati stjórnanda á vettvangi m.a. með það að markmiði að tryggja öryggi hins handtekna eða annarra.

Í ljósi fjölmargra fyrirspurna þá getur embættið staðfest að einstaklingarnir sem um ræðir eru farnir af landi brott í samræmi við ákvörðun viðeigandi yfirvalda um frávísun þeirra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Stjórnandi Facebook-hópsins stígur fram í máli Péturs Gauts – „Tilgangurinn er alls ekki að taka fólk af lífi“

Stjórnandi Facebook-hópsins stígur fram í máli Péturs Gauts – „Tilgangurinn er alls ekki að taka fólk af lífi“
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ísland.is sagt ekki uppfylla EES-reglur

Ísland.is sagt ekki uppfylla EES-reglur
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest

Ræstingakona lagði Hótel Akureyri – Var sökuð um þjófnað og trúnaðarbrest
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Faldi tæpar tíu þúsund evrur í skóm

Faldi tæpar tíu þúsund evrur í skóm
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans

Pétur Gautur varar við Facebook-hópi þar sem reynt var að rústa mannorði hans
Fréttir
Í gær

Þresti sparkað – Segir andkrist hafa hafa náð valdi á Miðflokknum í Múlaþingi

Þresti sparkað – Segir andkrist hafa hafa náð valdi á Miðflokknum í Múlaþingi
Fréttir
Í gær

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“

Sverrir Norland hneykslaður – „Viðurstyggilegt við að búðarstarfsfólk þurfi að fara niður á skeljarnar og grátbiðja viðskiptavini“