Öfgar, sem er hópur kvenna á samfélagsmiðlinum TikTok, og konur úr Facebookhópnum Aktívismi gegn nauðgunarmenningu hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna vals þjóðhátíðarnefndar á tónlistarfólki. Frá þessu greinir mbl.is, en meira en hundrað konur eru skráðar fyrir yfirlýsingunni.
Í morgun greindi þjóðhátíðarnefnd frá því að Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, myndi sjá um Brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ár. Það val virðist ansi umdeilt, en yfirlýsingin kemur í kjölfar fregnanna.
Í yfirlýsingunni er óskað eftir því að hlustað verði á þolendur, og að meintir kynferðisbrotamenn verði ekki ráðnir á skemmtanir sem þessar. Einnig er sett út á að alltaf halli á konur þegar kemur að hlutfalli kvenna sem skemmta á hátíðinni.
Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir, meðlimur hópsins Öfga, sagði í samtali við DV að viðbrögðin sem þau myndu vilja sjá væru breytingar á verklagsreglum í skipulagi. Auk þess myndu þær vilja sjá betri rannsóknarvinnu af hálfu skipuleggjanda og að hlustað verði á þolendur og fleiri konur.
Líkt og áður segir skrifuðu meira en hundrað konur undir yfirlýsinguna, en þar má nefna nokkrar þjóðþekktar konur, líkt og Sóley Tómasdóttur og Hildi Lilliendahl Viggósdóttur.
Yfirlýsing Öfga og AGN (Aktívismi gegn nauðgunarmenninu) er eftirfarandi:
Við í Öfgum (hópur kvenna á samfélagsmiðlinum TikTok) ásamt konum úr AGN (Aktívismi gegn nauðgunarmenningu á Facebook) óskum svara frá Þjóðhátíðarnefnd, hvernig þetta sé réttlætanlegt. Hvers vegna er meira virði að ráða meinta kynferðisbrotamenn en að virða þolendur? Hérna er heldur ekki bara tal um einn meintan geranda, eða tvo. Heldur er einnig ráðinn meintur eltihrellir. Hvernig er það réttlætanlegt? Hvernig ætlið þið að berjast gegn nauðgunum á Þjóðhátíð ef þið ráðið til ykkar meinta gerendur sem sýnir skýra afstöðu ykkar gegn þolendum?
Af hverju að taka áhættuna eftir ítrekaðar ábendingar um meinta misjafna hegðun? Hvernig væri að leyfa þolendum að njóta vafans? Af hverju hallar alltaf á konur hjá ykkur? Af hverju virðist lítill vilji vera til að gera betur?
Þið flotta tónlistarfólk – Nú gerum við okkur grein fyrir því að þetta sé klíka, í tónlistarheiminum, en er einhver séns að þið hjálpið okkur í þessari baráttu? Setja niður fótinn? Við biðlum til ykkar. Stöndum með þolendum og leyfum þeim að njóta vafans. Hættum að ráða meinta gerendur á kostnað tónlistarkvenna og þolenda.
Virðingarfyllst – Öfgar,
Ólöf Tara Harðardóttir
Hulda Hrund Sigmundsdóttir
Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir
Helga Benediktsdóttir
Ninna Karla Katrínardóttir
Anna Sonde
Aðalheiður Fríða Hákonardóttir
Brynhildur Yrsa Valkyrja GuðmundsdóttirÁsamt AGN
Elín Hulda Harðardóttir
Birgitta Sigurðardóttir
Sigrún Huld Skúladóttir
Steinunn Hákonardóttir
Elsa Björk Harðardóttir
Helga Vala Garðarsdóttir
Særún Ösp Þorláksdóttir
Inga Rós Vatnsdal
Eyrún Eva Gunnarsdóttir
Fjóla Heiðdal
Tinna Haraldsdóttir
Ingveldur Gísladóttir
Kristín Jónsdóttir
Ragna Björk Ragnarsdóttir
Ólína Lind Sigurðardóttir
Jóhanna Perla Gísladóttir
Sólrún Einarsdóttir
Helga Ólöf
Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir
Halldóra Jónasdóttir
Silja Ástudóttir
Sigrún Ósk Arnardóttir
Matthildur G. Björk Einarsdóttir
Helga Gestsdóttir
Inga María Ólafsdóttir
Særún Magnea Samúelsdóttir
Annie Marín Vestfjörð
Hafdís Erla Jónudóttir
Friðgerður Ósk Jóhannsdóttir
Júlía Garðarsdóttir
Arna Björk Hafberg Gunnarsdóttir
Halldóra Jóhanna Hafsteinsdóttir Âû
Sara Björk Biering
Þórhildur Löve
Anna Lind Vignisdóttir
Birta Guðmundsdóttir
Kristrún Ýr Einarsdóttir
Emma Ásudóttir Árnadóttir
Lóa
Fanný Rósa Bjarnadóttir
Sigurbjörg Anna Þorleifsdóttir
Edith Bech
Katrín Stefanía Klemenzardóttir
Ingibjörg Eyfjörð Hólm
Bylgja Júlíusdóttir
Ásta Þórisdóttir
Ásdís Virk Sigtryggsdóttir
Melkorka Huldudóttir
Oddrún Ólafsdóttir
Rakel Steinberg Sölvadóttir
Auður Ösp Hlíðdal Magnúsdóttir
Sunneva Holm
Freyja Fannberg Þórsdóttir
Kristín Elfa Guðnadóttir
Tanja Andersen Valdimarsdóttir
Kristín Erla Benediktsdóttir
Sandra Rut Skúladóttir
Elva Dögg Blumenstein
Kristbjörg Sigtryggsdóttir
Hallveig Hörn
Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir
Hildur Guðbjörnsdóttir
Sjöfn Friðriksdóttir
Birgitta Rós Björnsdóttir
Gerður Yrja Ólafsdóttir
Sigurlaug Lára
Hildur Sigurðardóttir
Erla Einarsdóttir
Sigrún Sól Ólafsdóttir
Eyrún Eva Gunnarsdóttir
Sigrún Huld
Ásdís Ágústsdóttir
Þuríður Ósk Gunnarsdóttir
Margrét Heiður Jóhannsdóttir
Elísabet Kristjánsdóttir
Karin Eva Hermannsdóttir
Sunna Björg
Elín Kona Eddudóttir
Rebekka Rosinberg
Ragna Björg Björnsdóttir
Elísa Snæbjörnsdóttir
Kristín Stefánsdóttir
Þórunn Vignisdóttir
Sigrún Fanney
Freydís Dögg Steindórsdóttir
Eydís Eir Brynju-Björnsdóttir
Helena Þóra Kærnested
Edda Rún Aradóttir
Dóra Dögg
Erna Sigrún
Eija Jansdotter
Magnea Jónasdóttir
Urður Bergsdóttir
Steinunn Diljá Högnadóttir
Sigríður Ása
Kolbrún Jónsdóttir
Anna Linda Matthiasdóttir
Ragnheiður H B Hafsteinsdóttir
Tinna Eik Rakelardóttir
Klara Mist Pálsdóttir
Maggý Helga Jóhannsdóttir Möller
Ragnhildur Erla Þorgeirsdóttir
Þórhalla Bjarnadóttir
Sóley Tómasdóttir
Hildur Lilliendahl Viggósdóttir
Sigurrós Yrja Jónsdóttir
Hrafnhildur Snæbjörnsdóttir
Silja Ástudóttir
Helga Sara Henrysdóttir
Kolbrún Erna Pétursdóttir
Eva Dögg Jóhannesdóttir
Kristín Inga Jespersen
María Rut Hinriksdóttir