Um klukkan hálf fimm í nótt var lögreglunni tilkynnt um yfirstandandi innbrot í verslun í Kópavogi. Þegar lögreglumenn komu á vettvang var maður inni í versluninni. Hann var þó ekki að reyna að brjótast inn því hann var að reyna að komast út.
Viðkomandi hafði sofnað á salerni verslunarinnar í gærkvöldi og vildi komast út þegar hann vaknaði. Þegar hann fór að reyna það fór þjófavarnarkerfið í gang.