fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Brjóstsviðasjúklingar landsins fá að kenna á Covid – Rennie ófáanlegt á landinu

Heimir Hannesson
Fimmtudaginn 11. febrúar 2021 17:30

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bakflæðilyfið sívinsæla, Rennie, er nú ófáanlegt hér á landi. Hálfdán Gunnarsson, framkvæmdastjóri Parlogis, dreifingaraðila Rennie hér á landi segir að framleiðslutafir hjá framleiðandanum Bayer sé sökudólgur Rennie skortsins. Má rekja framleiðslutafirnar til heimsfaraldurs Covid-19.  Að hans sögn er þó von á Rennie aftur til landsins í næstu viku.

Á heimasíðu Lyfjastofnunar er sérstakur kafli um lyfjaskort, sem er viðvarandi vandamál. Þar segir að orsakir lyfjaskorts séu margvíslegar. Um vandamál í framleiðsluferli geti verið að ræða, skortur á ákveðinni útfærslu lyfs, en þau eru gjarnan gefin út í mismunandi formi eða styrkleika. Um aukna eftirspurn geti verið að ræða, lyf geti verið afskráð, vandamál geti komið upp í flutningi viðkvæmra lyfja. Þá geta breytingar á lyfjalöggjöf ýmist hér heima eða erlendis orsakað skort, framleiðsluferlar eða bara gömlu góðu tafirnar á sendingum.

Á heimasíðu Lyfjastofnunar má jafnframt finna lista yfir þau skráningarskyldu lyf sem eru ófáanleg hér á landi. All flest eiga sér samheitalyf og eru því fáanleg undir öðru nafni, eða eru til í öðrum styrkleika. Skortur á öðrum lyfjum er veitt með því að veita undanþágu fyrir öðrum samskonar lyfjum.

Á þeim lista eru nú 30 lyf. Af þeim eru níu sem eru ófáanleg með öllu, í tíu tilfellum mæla lyfjafræðingar með undanþágulyfi, fimm lyfin eru fáanleg í öðrum styrk og sex eru fáanleg undir öðru nafni (samheitalyf).

Eitt lyfið sem ekki hefur verið fáanlegt, samkvæmt vefsíðu Lyfjastofnunar síðan í febrúar í fyrra er Vanquin, sem notað er til meðferðar á njálgi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin