fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fréttir

Barnung stúlka opinberaði hryllilegt ofbeldi á heimili sínu – Líflátshótanir og ógnarstjórn

Heimir Hannesson
Föstudaginn 5. febrúar 2021 13:26

mynd/Lögreglan á Suðurnesjum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsréttur staðfesti á miðvikudag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá því í lok janúar um að maður sæti gæsluvarðhaldi í fjórar vikur eða til 26. febrúar. Í úrskurðinum kemur fram að maðurinn sé undir sterkum grun að hafa beitt sambýliskonu sína og dóttur hennar bæði líkamlegu og andlegu ofbeldi.

Málið komst upp þegar stúlkan greindi frá ofbeldinu í samtali við starfsmenn skólans síns. Lýsti hún þar hvernig maðurinn legði hendur á móður hennar og beitti bæði hana og móður sína ofbeldi. Í annarri tilkynningu til Barnaverndar sem vitnað er til í úrskurðinum er að finna lýsingar á grófu heimilisofbeldi. Eru mæðgurnar þar sagðar búa undir líflátshótunum og móðirin óttast raunverulega um líf sitt.

Enn áréttaði barnið lýsingar sínar í annarri skýrslutöku hjá Barnavernd á langvarandi og miklu ofbeldi, ógnarstjórn og hótunum stjúpföður síns. Sagði stúlkan þar jafnframt að hún hafi verið „tekin í gegn“ fyrir að tala við Barnavernd og að hún þyrði nú ekki að fara heim og mæta stjúpföður sínum.

Maðurinn var árið 2019 dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og var sá dómur hegningarauki við dóm sem hann hlaut árið 2017. Í fyrri dómnum hlaut maðurinn fjögurra mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás gegn þáverandi konunni sinni og brot gegn nálgunarbanni. Dómurinn 2019 var svo fyrir 96 brot gegn nálgunarbanni.

Þá segir að opið mál sé í réttarvörslukerfinu gegn manninum er varðar meint brot mannsins gegn opinberum starfsmanni.

Sem fyrr segir var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. febrúar næstkomandi, klukkan 13:00.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga

Hún hefur heimsótt yfir 90 lönd en Ísland er eina landið sem hún getur heimsótt aftur og aftur – Nefnir dæmi um hugulsemi Íslendinga
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram

Faðir flúði til óbyggða með börnin og hefur verið á flótta í fjögur ár – Fjölskyldan grátbiður hann um að gefa sig fram
Fréttir
Í gær

Ákærur yfirvofandi vegna netsölu áfengis

Ákærur yfirvofandi vegna netsölu áfengis
Fréttir
Í gær

Gæsluvarðhald framlengt yfir grunuðum kynferðisbrotamanni á Múlaborg

Gæsluvarðhald framlengt yfir grunuðum kynferðisbrotamanni á Múlaborg
Fréttir
Í gær

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn

Guðrún segir að slagkrafturinn í sleggju Kristrúnar sé enginn