„Bara bjartsýni. Samt hógvær bjartsýni því maður hefur oft fengið það í bakið að vera bjartsýnn, en þetta eru allavega jákvæðar tölur,“ segir Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, um Covid-smittölur dagsins. Aðeins fjórir greindust með veiruna og allir voru í sóttkví. Um þúsund sýni voru tekin.
Varðandi það hvort þetta segi okkur eitthvað um hvernig okkur tókst til við að passa okkur á veirunni yfir áramótin, segir Rögnvaldur: „Á morgun og hinn daginn ættum við að sjá fyrstu vísbendingar um það. En við erum að sjá hærra hlutfall smita á landamærum en innanlands og reiknum með því að það verði þannig næstu daga. Fullt af fólki að kom heim eftir að hafa haldið jólin erlendis.“
Rögnvaldur segir að vel sé haldið utan um þá sem koma til landsins og sérstök aðgát sé gagnvart hinu svokallaða breska afbrigði veirunnar sem er mun meira smitandi en fyrri afbrigði. Öll sýni eru raðgreind með tilliti til þess hvaða afbrigði veirunnar sé um að ræða. „Það er gríðarlega mikilvægt að fólk fari eftir sóttvarnareglum, það er mjög auðvelt að missa eitthvað af stað ef fólk fer ekki eftir þeim reglum sem eru í gildi. Þetta eru ekki flóknar reglur og fólk fær mjög góðar leiðbeiningar um hvernig það á að haga sér, það fær bækling sem er á sjö eða átta tungumálum og svo fær það sms-skilaboð frá okkur á milli sýnatöku eitt og tvö, þar sem minnt er á hvernig þarf að haga sér. Svo fylgjumst við „extra“ vel með þeim sem eru með þetta breska afbrigði og það er líka hringt í það fólk.“
Í gær tók útgöngubann í Englandi gildi en alls 54.000 smit greindust þar í fyrradag með veiruna. Rögnvaldur segir að ástandið í Bretlandi sé „rosalegt“. „Fólk sem tengist mér býr þar og maður finnur til með þeim, þetta er næstum eins og fangelsi. Og það af því það hefur ekki tekist nógu vel að fá fólk til að taka þátt og fylgja leiðbeiningum. Þau hafa séð fólk sem er ekki að fara eftir þessu, þannig að það er kannski ekki skrýtið að Englendingar séu að fara út í svona „extreme“ aðgerðir.“
Rögnvaldur segir að það sé „súrrealískt“ hvar við erum stödd miðað við Bretland og nú getum við mögulega farið að horfa til þessa að létta á takmörkunum. Hann telur að heilt yfir hafi fólk verið að passa sig vel hér. „Við værum ekki að ná þessum árangri annars. Auðvitað kemur fyrir að einhverjir gleyma sér og það er líka mjög auðvelt að gleyma sér þegar vel gengur, þá vill brenna við að maður vilji laga reglurnar að sér af því að mann langar að halda partýið.“
„Maður sér að fólk er að passa sig í sundlaugum, sumir passa til dæmis vel upp á að það séu bara sex í heita pottinum. En það er kannski sama fólkið og situr í pottinum í hálftíma eða klukkutíma,“ segir Rögnvaldur og bendir á að þar með lendi þessir einstaklingar í nálægð við mjög marga.
„Stundum þurfum við að líta meira í eigin barm, hver og einn skoði hvað hann getur gert betur, í stað þess að benda á aðra og skamma þá. Flestir eru að gera sitt besta en stundum verður fólki á og það er bara eðlilegt.“