fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Þrjú andlát hérlendis í kjölfar bólusetningar – UPPFÆRÐ FRÉTT

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 4. janúar 2021 17:25

Mynd: Stjórnarráð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilkynnt hefur verið til Lyfjastofnunar um þrjú dauðsföll í kjölfar bólusetningar gegn COVID-19 hér á landi.

Samkvæmt ummælum Rúnu Hauksdóttir Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, við mbl.is er ekki um orsakatengsl að ræða. Tveir einstaklingar sem í hlut eiga voru með undirliggjandi sjúkdóma og dvöldust á heilbrigðisstofnunum er þeir voru bólusettir. Nú þegar hafa 5.000 manns í forgangshópi verið bólusettir.

Tólf tilkynningar um aukaverkanir af völdum bóluefnisins hafa borist Lyfjastofnun og þessi tvö dauðsföll eru meðal þeirra tilkynninga.

Samkvæmt frétt RÚV hafa þrjú dauðsföll verið tilkynnt til Lyfjastofnunar í kjölfar bólusetninga en í frétt mbl.is voru þau sögð tvö. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir í samtali við RÚV að óvíst sé hvort dauðsföllin þrjú tengist bólusetningunum. Hann segir að afla þurfi meiri upplýsinga um heilsufar þessa fólks áður en komist sé að niðurstöðu um hvort bólusetningarnar tengist andlátunum. Þórólfur segir:

„Maður þarf líka að muna að þarna var verið að bólusetja þá veikustu og elstu í samfélaginu, sem eru hrumir og með langvinna sjúkdóma. Það getur ýmislegt haft áhrif sem ekki tengist bólusetningunni þegar um er að ræða veikast fólkið okkar. Þannig að spurningin er hvort þetta tengist bólusetningunni. Það getur verið erfitt að fullyrða nokkuð um það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“