fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Ungar konur gera það gott í barnafatabransanum

Heimir Hannesson
Sunnudaginn 20. september 2020 09:00

Guðríður, eigandi Barnaloppunnar, fann gat á markaðnum og með tilkomu sölubása fyrir notaðan barnafatnað hefur hún slegið í gegn. mynd/Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rífandi gangur virðist vera í rekstri barnafataverslana, en þeim hefur fjölgað talsvert og velta þeirra aukist mjög. DV hefur undir höndum ársreikninga fjölda þeirra og ljóst að um er að ræða risamarkað, enda hleypur samanlagður rekstur þeirra á milljörðum.

Ekki er langt síðan Íslendingar flykktust erlendis í verslunarferðir og voru barnaföt stór hluti góssins sem dregið var upp úr smekkfullum ferðatöskum erlendis frá. Síðan þá hefur þeim fjölgað hér og verslanir eins og H&M og Lindex opnað hér á landi. Mikil sala hefur verið í barnafatnaði innanlands og má sem dæmi nefna að mikill vöruskortur hefur verið hjá H&M hérlendis og þá sérstaklega í barnafatnaði í útibúi verslunarinnar í miðborginni. Hillur H&M hafa verið hálftómar svo mánuðum skiptir og segja starfsmenn mikla kergju vera í viðskiptavinum vegna vöruskorts.

Ekki er lengur eins hagstætt að versla barnafatnað erlendis sé verið að panta hann í gegnum vefsíður, þar sem heimsendingarkostnaður og tollur bætist ofan á verðið og er í ríkara mæli þá um sambærilegt verð og í verslunum að ræða. Hátt gengi krónunnar spilar þar einnig stórt hlutverk.

Kvartmilljarða velta hjá Petit ehf.

DV skoðaði ársreikninga barnafataverslana fyrir árið 2019 og kom þar ýmislegt áhugavert í ljós. Til dæmis tvöfaldaði Petit ehf., sem rekur verslunina Petit í Ármúla, sölu sína frá árinu áður og námu þær í fyrra 258 milljónum króna. Á sama tíma jukust eignir félagsins umfram skuldir um rúmar 7 milljónir og tekjurnar um 86 milljónir. Hagnaður Petit nam á síðasta ári um 7 og hálfri milljón. Petit er í eigu þeirra Önnu Linnea Charlotte Ahle og Gunnars Þórs Gunnarssonar. Það ber að nefna að Petit er umboðsaðili vinsælla barnavagna sem heita Bugaboo og kosta vinsælustu tegundirnar í kringum 190.000 þúsund.

Nine Kids, barnavöruverslun á Grensásvegi, kom til sögunnar árið 2018 og hefur tekið vel við sér. Á öðru ári rekstrar fór velta fyrirtækisins úr 9 í 128 milljónir króna. Nine Kids eru stórtæk í sölu barnabílstóla. Fyrirtækið er í eigu Sigríðar Rúnar Siggeirsdóttur og Helgu Sigurðardóttur. Hagnaður þess nam rúmri milljón á árinu.

Ólavía og Óliver hefur rekið sína verslun í Glæsibæ síðan 1995 og er í eigu Breks ehf., sem er alfarið í eigu Þórunnar Ólafar Sigurðardóttur. Af rekstrarreikningi Ólavíu og Ólivers að dæma, virðist fyrirtækið hafa misst spón úr aski sínum yfir til samkeppnisaðilanna á árinu, því tekjurnar drógust saman um 13 milljónir á árinu.

Minimo stendur höllum fæti

Fatura ehf., sem rekur verslunina Minimo hélt áfram að skila tapi á árinu. Tap ársins 2018 var rúmar fjórar milljónir og jókst í rúmar fimm í fyrra. Þó tvöfaldaðist veltan úr sjö í fjórtán milljónir og er eigið fé þeirra neikvætt um 13 milljónir. Skuldir félagsins jukust um 11 milljónir á árinu en eignir aðeins um sex milljónir. Athygli vekur að aðeins er einn skráður starfsmaður hjá versluninni í 70% starfi samkvæmt ársreikningi.

Barnaloppan og Bíumbíum á grænni grein

Barnaloppan í Skeifunni sérhæfir sig í sölu notaðra barnafata, en þar geta foreldrar leigt bása og selt notuð barnaföt á sínu verði. Barnaloppan þjónustar svo viðskiptavini sína með starfsfólki sem sér um eiginlega sölu, en fyrirtækið þykir einnig skila jákvæðum samfélagslegum ávinningi með því að hvetja til ábyrgrar endursölu á barnavörum. Fyrirtækið er í eigu Guðríðar Gunnlaugsdóttur. Tekjur af sölu stórjukust á liðnu ári og námu heilum 73 milljónum króna í fyrra. Hagnaðurinn nam rúmri þremur og hálfri milljón og jukust enn fremur eignir félagsins um á fjórðu milljón. Eigendur Barnaloppunnar opnuðu Extra-loppuna sumarið 2019, sem er byggð á sömu hugmyndafræði nema á fatnaði og vörum fyrir fullorðið fólk. Merkjavörur eru þar vinsælar og hefur fjöldi þekktra einstaklinga selt merkjavörusafn sitt í Extra-loppunni.

Bíumbíum skilaði vel á árinu. Tekjur félagsins jukust um 34 milljónir á milli ára og námu í fyrra 139 milljónum. Hagnaður nam tíu og hálfri milljón. Bíumbíum er með verslun í Síðumúla. Eignir félagsins námu í lok síðasta árs um 45 milljónum. Vó þar þyngst vörubirgðaliður, sem nam rúmum 43 milljónum.

Samanlögð 700 milljóna velta

Samanlögð velta þessara fyrirtækja, sem öll eiga það sammerkt að sérhæfa sig í sölu barnavara og fatnaðar, nemur rúmum 700 milljónum. Mestur var hagnaður bíumbíum og Petit ehf. Petit var jafnframt langtum stærsta verslunin, með nánast tvöfalt hærri veltu en næsta verslun.

Þessi velgengni fyrirtækjanna er sérstaklega áhugaverð í ljósi áðurnefndrar ferða- og kaupgleði Íslendinga erlendis og að H&M og Lindex eiga engu að síður stóran hluta af barnafatamarkaðnum. Það vekur enn fremur athygli að eigendur og rekstraraðilar margra þessara verslana er ungt fólk á barneignaaldri. Anna Linnea hjá Petit verður til að mynda 33 ára á næsta ári og konurnar á bak við Nine Kids eru 34 og 35 ára. Guðríður í Barnaloppunni er líka 35 ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann

Hefur þú stofnað bankareikning í Danmörku? Þá þarftu kannski að bregðast hratt við svo peningarnir þínir renni ekki í danska ríkiskassann
Fréttir
Í gær

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum

Facebook hafnaði kosningaauglýsingu Guðmundar Felix á undarlegum forsendum
Fréttir
Í gær

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum

Ljótar sögur ganga um starfsmenn Langanesbyggðar – Björn sveitarstjóri talar um „eitrað andrúmsloft“ á staðnum
Fréttir
Í gær

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“

Mörg dæmi um að frændhygli, kunningsskapur og pólitísk fyrirgreiðsla ráði för – „Og svo spurði ég um spillingu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni