fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

„Er virkilega ekki hægt að gera betur?“ spyr Lára – „Líklega ein versta tilfinningin“

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 20. september 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það situr í mér eitt kvöld þar sem ég var á skurðlæknavakt fyrir mörgum árum. Á vaktina var komið með starfsbróður minn sem var í alvarlegum sjálfsvígshugleiðingum.“

Svona hefst pistill sem læknirinn Lára G. Sigurðardóttir skrifar í Fréttablaðið. „Sama hvað ég reyndi, þá komum við að lokuðum dyrum hjá geðdeildinni. Ef einhver trúir því að það sé til læknamafía, þá var hún ekki á vakt þessa nótt,“ segir hún en á endanum fór orkan í að reyna að fela hennar eigin ekka og táraflóð, því Láru fannst heilbrigðiskerfið, sem hún var partur af, geta gert betur. „Góður skurðlæknir á vakt hughreysti óléttu buguðu mig, en það er aukaatriði – ekki vorum við að fara að skera burtu sjálfsvígshugsanirnar,“ segir hún.

„Það er líklega ein versta tilfinningin, að geta ekki hjálpað til þegar líf nærstaddra er í húfi,“ segir Lára. „Tala ekki um ef um ræðir ástvin eða barn. Í mínu nánasta umhverfi eru fleiri en eitt og fleiri en tvö tilfelli þar sem lítil sem engin úrræði eru í boði. Fólk hrökklast heim með þann veika og finnst það ekki tekið alvarlega.“

„Gríðarlega mikilvægt“

„Er virkilega ekki hægt að gera betur?“ spyr Lára. „Mættu á bráðamóttökuna með sprunginn botnlanga og þú ert strax settur í ferli og læknaður eins fljótt og hendur vinna. En mættu með veikan huga og þú verður allt eins sendur heim.“

Alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga var haldinn nýlega. „Heilbrigðisráðherra gaf vilyrði fyrir auknu fjármagni fyrir stöðu verkefnastjóra sjálfsvígsforvarna. Á vef Embættis landlæknis segir að það skipti miklu að grípa snemma einstaklinga sem líður illa. Tryggja þurfi því gott og hindrunarlaust aðgengi að þjónustu. Sem er gríðarlega mikilvægt því í flestum tilfellum er ákvörðunin um að enda eigið líf tekin í skyndi,“ segir Lára.

„Níu af hverjum tíu“

Þá vitnar Lára í rannsókn Harvard-háskólans á fólki sem var nærri því að látast eftir sjálfsvígstilraun. „Um 75% létu til skarar skríða á innan við klukkutíma frá því þau tóku ákvörðun og allt að 40% innan einungis fimm mínútna,“ segir hún. „Á sömu síðu kom einnig fram að flestir sem lifðu af voru með eftirsjá. Það vakti líka athygli mína að níu af hverjum tíu sem lifa af alvarlega sjálfsvígstilraun munu ekki falla fyrir eigin hendi í framtíðinni.“

„Starfsfólkið fær sérhæfða þjálfun

Lára segir að á Íslandi séu fjögur númer sem hægt er að hringja í líði manni illa. „En ekki veit ég hversu markvissa þjálfun fólkið á símanum hefur fengið,“ segir hún og talar síðan um símalíflínu sem Henry Ford heilbrigiðsþjónustan opnaði árið 2001. Sú þjónusta kallast „Zero suicide“ eða „Núll sjálfsvíg“ á íslensku. Lára segir að stöðugt sé verið að uppfæra þjónustuna eftir því sem þekking eykst.

„Starfsfólkið fær sérhæfða þjálfun þar sem virðing og samkennd eru í fyrirrúmi. Áhætta er metin og þau sem eru í mestri hættu fá samdægurs ítarlega geðskoðun ásamt meðferð. Hinir fá vísindalega þróaðar leiðbeiningar og símtal um hvernig gangi. Á níu ára tímabili fækkaði sjálfsvígstilfellum hjá þeim um 78%.“

„Hann fékk annan séns“

„Vísindamenn hafa lengi vitað að höfnun og vanlíðan rista djúp sár í sálina, sem sjást ekki með berum augum,“ segir Lára og tekur fram að það sé mikilvægt að  átta sig á því að kvíði, leiði og reiði er stór partur af eðlilegu tilfinningalífi. „Það er þegar hugurinn bugast undan þeim sem þarf að bregðast hratt við.“

Hún segir að við þurfum að byrja að sjá og taka eftir andlegum sársauka, líkt og líkamlegum. „Því fagna ég að ákvörðum hefur verið tekin um að tryggja hindrunarlaust aðgengi, því það getur verið of seint að bíða fram á næsta dag,“ segir hún. „Starfsbróðir minn fékk á endanum aðstoð og hefur notið velgengni í lífi og starfi allar götur síðan. Hann fékk annan séns.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”