fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Félag fréttamanna gagnrýnir Samherja harðlega og segir framkomu þeirra hættulega í lýðræðislegu samfélagi

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 11. ágúst 2020 15:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag fréttamanna hefur gefið út yfirlýsingu þar sem Samherji eru harðlega gagnrýndir fyrir árásir fyrirtækisins á fréttamanninn Helga Seljan. Það sé áhyggjuefni að stórfyrirtæki geti farið í álíka vegferð til að gera einstaka fjölmiðlamenn tortryggilega í stað þess að svara efnislega fyrir um ásakanir sem á fyrirtækinu hafa verið bornar.

„Þekkt er víða um heim að fjársterkir aðilar beiti ýmsum aðferðum til að vekja efasemdir um fréttaflutning sem að þeim snýr. Það skapar þá hættu að grafið sé undan trausti á fjölmiðlum og að fjölmiðlar veigri sér við að fjalla um einstaka aðila. Af því er mikil hætta búin fyrir lýðræðislegt samfélag sem byggir á því að almenningur fái að vita hvað ráðamenn í stjórnmálum og áhrifamenn í viðskiptum og atvinnulífi aðhafast. Slíkt hefur legið í loftinu síðan Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjölluðu um Samherjaskjölin síðastliðið haust.

Stjórn Félags fréttamanna lýsir einnig undrun sinni og vonbrigðum með að sumir fjölmiðlar hafa tekið algjörlega gagnrýnislaust upp ásakanir og framsetningu í myndbandi stórfyrirtækisins sem birt var í morgun.“

Yfirlýsingin í heild sinni: 

„Yfirlýsing frá Félagi fréttamanna

Stjórn Félags fréttamanna gagnrýnir harðlega að stórfyrirtækið Samherji skuli veitast að persónu Helga Seljan fréttamanns með ómaklegum hætti. Myndband fyrirtækisins, sem birt var í dag, virðist hafa verið unnið til þess eins að vekja efasemdir um réttmæta umfjöllun fjölmiðla um málefni fyrirtækisins.

Það er áhyggjuefni að forsvarsmenn stórfyrirtækja, sem fjölmiðlar fjalla eðlilega um, skuli velja að reyna að gera einstaka fjölmiðlamenn tortryggilega í stað þess að svara efnislega þeim atriðum sem fram hafa komið í umfjöllun fjölmiðla um starfsemi fyrirtækisins. Það vekur jafnframt áhyggjur að fyrirtækið skuli birta slíkar ávirðingar í gervi heimildaþáttar og grafa þannig undan fjölmiðlum almennt.

Þekkt er víða um heim að fjársterkir aðilar beiti ýmsum aðferðum til að vekja efasemdir um fréttaflutning sem að þeim snýr. Það skapar þá hættu að grafið sé undan trausti á fjölmiðlum og að fjölmiðlar veigri sér við að fjalla um einstaka aðila. Af því er mikil hætta búin fyrir lýðræðislegt samfélag sem byggir á því að almenningur fái að vita hvað ráðamenn í stjórnmálum og áhrifamenn í viðskiptum og atvinnulífi aðhafast. Slíkt hefur legið í loftinu síðan Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjölluðu um Samherjaskjölin síðastliðið haust.

Stjórn Félags fréttamanna lýsir einnig undrun sinni og vonbrigðum með að sumir fjölmiðlar hafa tekið algjörlega gagnrýnislaust upp ásakanir og framsetningu í myndbandi stórfyrirtækisins sem birt var í morgun.

Fyrir hönd Félags fréttamanna

Alma Ómarsdóttir, formaður Félags fréttamanna“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Í gær

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu

Telja að Trump dragi sig í hlé sem sáttasemjari á milli Rússlands og Úkraínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“