Furðulegur þjófnaður átti sér stað á tjaldsvæðinu í Þrastaskógi, skammt frá veitingastaðnum Þrastalundur, og ekki langt frá Selfossi, er strumpi sem uppblásinn er heilir níu metrar að hæð, var stolið beint fyrir utan afgreiðsluna.
„Við erum nýbúin að opna aftur eftir breytingar og við vorum með þennan strump. Hann var ekki uppblásinn, vorum nýbúin að taka hann niður þegar við fórum inn, og fimm mínútum síðar var hann horfinn,“ segir starfsmaður tjaldsvæðisins í samtali við DV.
Hann viðurkennir að málið sé spaugilegt en þetta sé engu að síður bagalagt: „Það eru allir búnir að vera að hlæja að þessu og ég skil það. Þetta er rándýr strumpur og allt það. En þetta er með fáránlegri hlutum sem hægt er að stela, níu metra hár strumpur! Þetta er eini svona strumpurinn á landinu og það eru ekki einu sinni til margir svona í heiminum. Þú selur þetta ekkert og þú ert ekki að fara að blása þetta neins staðar upp!“
Að sögn starfsmannsins var tjaldsvæðið í Þrastaskógi opnað að nýju í gær eftir breytingar og endurbætur. Strumpurinn hafði um stutt skeið staðið þarna uppblásinn sem auglýsing, með upplýsingar um tjaldsvæðið á áhangandi skilti. Þegar honum var stolið lá hann loftlaus í jörðinni og starfsfólkið hafði brugðið sér frá inn í hús til að borða kvöldmat. Að sögn starfsmannsins hefur þjófnaðurinn aðeins getað átt sér stað á um fimm mínútna tímakafla.
„Við erum nýbúin að taka við svæðinu og höfðum verið að leggja rafmagn og setja upp heitt og kalt vatn. Svo hefur strumpurinn verið blásinn upp þegar vel viðrar,“ segir starfsmaðurinn og bendir á að auðvelt sé að stela strumpinum þegar hann er loftlaus:
„Þetta er bara eins og svartur ruslapoki ef einhver treður þessu inn í bílinn sinn.“
Að sögn starfsmannsins er verðmæti strumpsins um 400 þúsund krónur. Hann er fullkomlega gagnslaus öðrum en þeim aðila sem ætlaði að nota hann í auglýsingaskyni, tjaldsvæðinu í Þrastaskógi.
Starfsmaðurinn leggur áherslu á að ef strumpinum verður skilað aftur verða engir eftirmálar af verknaðinum. Allir sem kunna að hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband í síma: 8230096